Loka hefur þurft um 20% af öllu húsnæðis endurhæfingarmiðstöðvarinnar á Reykjalundi.
Hún var stofnuð af SÍBS í landssöfnun árið 1945 þegar berklar voru útbreiddur sjúkdómur og margir þörfnuðust endurhæfingar. Síðan þá hafa kröfur til heilbrigðisstofnana breyst mikið. Margar byggingar Reykjalundar eru komnar til ára sinna og þarfnast nauðsynlegs viðhalds.
„Það er fjölmargt og það er nánast allt sem þarf að laga hérna,“ segir Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar.
Endurnýja þarf þak á mörgum byggingum á svæðinu og til skoðunar er að rífa einhverjar byggingar þar sem mögulega sé ekki hægt að bjarga þeim. Þá þarf að koma fyrir dreni undir einhverjum byggingum þar sem slíku var ekki komið fyrir þegar húsin voru byggð fyrir meira en 80 árum.
Heildarviðhaldsþörf um 2 milljarðar króna
„Það fór fram úttekt á viðhaldsþörf fyrir ja í kringum 2022 2023 og þá var metið að kostnaður, það þyrfti að fara í kostnaðarsamar viðgerðir upp á 2 milljarða,“ segir Svana.
Ekki sé þó hægt að ráðast í öll verkefni og segir Svana að til að byrja með sé eitt verkefni valið í einu og sett í forgang.
„Við erum búin að vera að vinna í sundlauginni í allt sumar og þeirri viðgerð er ekki lokið,“ segir hún.
Reykjalundur er með samning við Sjúkratryggingar Íslands vegna þjónustu við sjúklinga en að sögn Svönu dugar það fjármagn einungis til að greiða starfsmönnum laun.
Reykjalundur er stærsta endurhæfingarstofnun landsins. Þar getur fólk fengið endurhæfingu eftir hjarta- og lungnasjúkdóma og fleiri krankleika. Rúmlega 140 starfsmenn eru á Reykjalundi og sinnir stofnunin á annað þúsund manns á ári hverju.
Um 280 milljóna króna hallarekstur var á Reykjalundi í fyrra.
Happdrætti SÍBS veitti áður mikinn stuðning en mikið hefur dregið úr kaupum á happdrættismiðum. Efnt verður til nýrrar landssöfnunar á föstudaginn svo hægt verði að hrinda af stað brýnu verkefni sem er viðhald á sjúkraþjálfunarganginum.
Fjárþörf fyrir þær endurbætur er talin um 300 milljónir.
Og þá vona ég að ekkert óvænt komi upp,“ segir Svana.
„Við munum ekki ná að safna fyrir því í þessari landssöfnun en við eigum SÍBS að og þau munu hjálpa okkur að ljúka þessu verkefni. En við verðum að sjá fyrir endann, þegar við byrjum þá verðum við að vita að við getum lokið verkefninu.“