Um 4.900 hafast við í neyðarskýlum vegna flóða í Bangkok á Taílandi. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í borginni vegna mikillar úrkomu og flóða undanfarið en um 52.000 heimili hafa orðið fyrir tjóni vegna flóðanna.
Hillur sumra verslana hafa tæmst því íbúar hafa verslað nauðsynjavöru í stórum stíl. Vatnsyfirborð í skurðum er enn mjög hátt en yfirvöld vinna að því að losa vatn úr þeim.
Einn íbúi sagði í samtali við fréttaveitu AFP að hús sitt hefði verið undir vatni í um 30 klukkustundir. Íbúar borgarinnar eru ýmsu vanir á þessum árstíma þegar úrkoma nær hámarki en margir segja að úrkoman nú sé mun meiri en fyrri ár.
Mörgum eru flóðin árið 2011 enn í fersku minni, en yfir 500 fórust og yfir milljón heimila eyðilögðust í flóðunum.
Yfir 10.000 hermenn í taílenska hernum hafa verið kallaðir út til að aðstoða við björgunaraðgerðir vítt og breitt um landið en flóð eru alls í 25 héruðum í Taílandi. Veðurstofan í Taílandi spáir því að það fari að draga úr úrkomu í dag, mánudag.