Mikið og vandasamt hreinsunarstarf er fram undan á Gaza-ströndinni. Sameinuðu þjóðirnar áætla að það geti tekið allt að sjö til tíu ár að fjarlægja mestu rústirnar af Gaza-ströndinni og kostnaðurinn er metinn á milljarða dollara.
The Guardian segir að hreinsunarstarfið á Gaza-ströndinni sé eitt umfangsmesta hreinsunarstarf sögunnar. Jaco Cilliers hjá Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna í Palestínu segir að umfang rústanna sé um það bil tuttugufalt meira en eftir öll stríð í heiminum á síðastliðnum 18 árum.
Allt að 10.000 lík grafin í rústum bygginga
Búið er að hreinsa um 580 kílómetra af vegum en hreinsunarstarfið er sérlega vandasamt og seinlegt. Talið er að um átta til tíu þúsund lík séu grafin undir rústum bygginga.
Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðaráð Rauða krossins vinna að því að finna staði þar sem líkamsleifar gæti verið að finna svo hægt sé að endurheimta líkamsleifarnar, bera kennsl á þær og síðan jarða.
Þá er einnig mikið um ósprungnar sprengjur sem erfitt getur verið að koma auga á og það krefst sérkunnáttu að aftengja og fjarlægja sprengjurnar.
Sumar rústir hafa tilfinningalegt gildi
Um 907.000 tonn af rústum hafa verið fjarlægð og um 300.000 tonn hafa verið endurnýtt og endurnotuð á síðastliðnum tveimur árum. Það er þó aðeins um 1,5% af heildarmagni rústanna á Gaza.
Ísraelsk yfirvöld hafa auk þess bannað flutning á nauðsynlegum búnaði til svæðisins á þeim forsendum að öll neyðaraðstoð utan matvæla og lyfja gæti nýst Hamas samtökunum.
Reynt er að endurnýta rústirnar þegar þess er kostur. Efni og rústum er safnað saman á fimm flokkunarsvæðum á Gaza og það flokkað eftir því hvort það sé endurnýtanlegt eða ekki. Grjót og steypa er mulin niður sem síðan er reynt að nýta í viðgerð vega og til uppyllingar á holum.
Nehal Abu Hassan, verkfræðingur hjá Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna, segir að erfitt sé að vinna með efnið og það sé ekki af sömu gæðum og það jarðvegsefni sem venjulega er notað við vegaframkvæmdir.
Hreinsunarstarfið gerir þó íbúum kleift að hefja nýja starfsemi eða endurheimta aðgengi að íbúðarhverfum eða svæðum.
„Rústir eru ekki bara rústir fyrir fólki. Þær eru tákn fyrir líf þess og minningar. Í sumum tilfellum geta lík enn verið undir rústunum og þess vegna er það mjög viðkvæmt mál fyrir fjölskyldur og samfélög þegar þær eru fjarlægðar,“ sagði Abu Hassan.