Telur Viðskiptaráð hafa tekið á sig of mikla sök
Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands fer í gegnum umdeildar greiningar og viðbrögð við þeim. Þá er einnig rætt um lærdóm hrunsins. „Mér finnst menn hafa tekið á sig of mikla sök“
Framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands, Birni Brynjúlfi Björnssyni, finnst Viðskiptaráð Íslands hafa tekið á sig of mikla sök eftir hrunið. Hann telur stéttarfélög hafa náð markmiðum sínum og séu nú að seilast of mikið inn í umsvif hins opinbera auk þess sem hann telur fjárhagslegan ávinning af olíuleit mögulega veigameiri en ávinning af grænum áherslum; það þurfi í það minnsta að finna jafnvægi í þeim málum, að hans mati.
Viðskiptaráð er umdeild hugveita sem hefur birt margs konar greiningar sem hafa valdið töluverðri úlfúð í samfélaginu. Leiðtogi stéttarfélags hefur skrifað á opinberum vettvangi að Viðskiptaráð sé haldið þráhyggju þegar kemur að kjörum og réttindum opinberra starfsmanna, kennarar saka þá um að kunna ekki að reikna og umhverfisverkfræðingur bendir á að greining um sorphirðu hafi verið villandi og innihaldið rangar tölur. Björn Brynjúlfur stendur við allar greiningar Viðskiptaráðs og telur gagnrýnina oftast ómaklega.
Blaðamaður Heimildarinnar settist niður með Birni og fór í gegnum …