Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, segir að það séu helst stjórnvöld og sveitarfélög sem ekki hafi staðið vaktina í baráttunni við verðbólguna.
„Núna kemur í ljós fyrir 8. október hvort við segjum þeim upp og að hér verði upplausnarástand, spái ég, næstu vikurnar og jafnvel mánuði ef ekki tekst að ná saman einhverju sem menn geta sætt sig við. Við erum að reyna þetta og við erum búin að reyna að vera í sambandi við stjórnvöld sem gengur illa.“
Aðalsteinn fagnar þó ákvörðun sveitarfélaganna um að halda gjaldskrárhækkunum innan við 2,5 prósentum á næsta ári. Hann segir líka besta mál að vissar verslanakeðjur hafi ákveðið að halda aftur af hækkunum.
„Á sama tíma veit ég ekki, og margir aðrir, á hvaða vegferð þessi ríkisstjórn er því síðustu mánuði hafa þau verið að hækka alla skapaða hluti, komugjöldin um 100 prósent og við sjáum líka 15,9 prósenta hækkun á kílómetragjaldi sem kemur öllum illa og ekki síst okkur sem búum á landsbyggðinni og þurfum að keyra oft um langan veg til að sækja opinbera þjónustu og annað.“
Hann segir að samningar losni ef stjórnvöld komi ekki með eitthvert útspil.
„Það er fyrst og fremst stjórnvöldum að kenna hver staðan er í dag.“