Ungverska þingið samþykkti í dag að svipta þrjá menn þinghelgi vegna rannsókna á því hvort þeir hefðu framið lögbrot.
Tveir mannanna voru ráðherrar í valdatíð Viktors Orbans, fyrrverandi forsætisráðherra, þeir Balazs Hanko sem var menningarráðherra og Miklos Sesztak sem var ráðherra skipulagsmála. Sá þriðji er Peter Magyar forsætisráðherra.
Saksóknarar fóru í síðustu viku fram á heimild þingsins til að rannsaka störf mannanna þriggja.
Hanko er grunaður um að hafa dregið sér 40 milljónir evra, andvirði 5,5 milljarða króna, meðan hann var í embætti. Sesztak er sakaður um að hafa þegið mútur að andvirði hundraða milljóna króna. Báðir neita sök.
Magyar hefur verið sakaður um þjófnað með því að rífa síma af manni sem myndaði hann á skemmtistað og henda honum í Dóná. Hann hefur lýst rannsókninni á sér sem tilraun til mannorðsmorðs.
Magyar hvatti til þess að hann sjálfur yrði sviptur þinghelgi. Fidesz, flokkur fyrrverandi ráðherranna tveggja, sniðgekk atkvæðagreiðsluna.