Sámur, hundurinn hennar, var ekki hrifinn af sólinni og beið þolinmóður eftir að hún væri búin að baða sig. Það fór vel um hann í skugga á bak við stein.
Rúmlega tíu þúsund manns fylgja Dorrit á Instagram og þar er hún dugleg að deila ýmsum ævintýrum. Hún og leikkonan Unnur Eggertsdóttir áttu til dæmis skemmtilegar stundir saman í New York á dögunum og voru duglegar að deila myndum af því.
Þar skrifaði Dorrit athugasemdina: „Svo gaman að hittast, þrátt fyrir slæmt hár,“ enda hafði hún ekki gott aðgengi að íslenskum uppsprettum vestanhafs!