Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, hefur á sínum ferli rannsakað hegðun fólks í verslunum og hefur yfirgripsmikla þekkingu á sérsniðinni verðlagningu.
Hann segir það þýði ekki lengur fyrir fyrirtæki að auglýsa sama verð fyrir alla en íslensk fyrirtæki eigi langt í land með að aðlagast þessum breytta veruleika.
Rætt er við Valdimar í hlaðvarpsþættinum Þetta nútímalíf.
Proxí-stríð háð í gagnaverum framtíðar
Valdimar segir að í framtíðinni muni neytendur nota sína eigin gervigreindarfulltrúa sem geti skannað allar matvöruverslanir, fundið verðið og veitt upplýsingar.
Gervigreindarfulltrúar okkar og verslunarinnar eigi þannig eftir að há leppstríð eða proxí-stríð í einhverju gagnaveri. Þetta kemur í staðinn fyrir gamla góða prúttið.
Hverjir tapa?
Það fylgja þessari þróun margar siðferðisspurningar. Ef síminn þinn er að verða straumlaus, má þá rukka þig meira fyrir leigubíl? Má rukka fjölskyldufólk meira fyrir mjólk og brauð?
Fleira kemur til. Það er auðvelt að gera sér í hugarlund að ákveðnir hópar verði undir, að þetta verði skattur á fólk sem er hvatvíst, með lága greindarvísitölu, lítinn tíma eða slakt tæknilæsi.
„Sá sem setur ekki orku í að afla sér upplýsinga er líklegur til að borga brúsann fyrir hinn sem er verðviðkvæmari, gefur sér tíma og notar tækni,“ útskýrir Valdimar.
Unglingar og fólk sem er mjög spennt fyrir því að kaupa eitthvað geti þannig lent í því að þurfa að greiða meira.
Rætt er ítarlega við Valdimar í hlaðvarpsþættinum Þetta nútímalíf. Þar er líka rætt við Þórarin Stefánsson, framkvæmdastjóra og stjórnarmann í Neytendasamtökunum, og Sesselíu Birgisdóttur, forstöðumann viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum.