„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“ - Vísir

„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“ - Vísir

„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“ - Vísir

Greint var frá því fyrir helgi að yfir 2500 börn hafa beðið í meira en þrjá mánuði eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Nýjustu tölur umboðsmanns barna um biðlista sýna að staðan hefur víða versnað. Í samantekt embættisins í síðustu viku kom fram að hjá Geðheilsumiðstöð barna bíða 2705 börn eftir greiningu og hafa 2591 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Frá því í febrúar hafa 252 börn bæst á listann en börnum sem hafa beðið lengur en þrjá mánuði hefur fjölgað um 691. 744 börn eru á biðlista hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð, 697 þeirra hafa verið á lista í yfir þrjá mánuði.

„Maður upplifir stundum að maður sé að góna upp í vindinn,“ segir Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, um viðbrögð stjórnvalda við þessum biðlistum. Rætt var við hann í Bítinu á Bylgjunni.

Hann segir samtökin hafa bent á aukna ásókn í greiningar vegna aukinnar meðvitundar og þekkingar á snemmtækri greiningu og íhlutun. Þá hafi samtökin einnig bent á að afkastageta stjórnvalda sé eins og lítil trilla en það þurfi skuttogara.

Afkastagetan of lítil

Hann segir þetta ekki endilega snúast um manneklu, heldur þurfi fjármagn til að ráða fólk til að ráðast að vandanum og auka afkastagetu.

„Í rauninni skilst okkur að þau fái sirka 100 til 150 beiðnir á mánuði en geti greint svona 50 til 60, þannig að þessi vandi er auðreiknanlegur og fyrirsjáanlegur,“ segir Hrannar Björn og að stærsta vandamálið sé lítil afkastageta til að sinna hópnum.

„Vandinn hefur bara verið látinn drabbast, ekki í ár eða tvö, heldur í áratugi. Þetta hefur verið vitað mál og við höfum horft á þetta vaxa ár frá ári undanfarinn áratug,“ segir hann og að sömu biðlista sé að sjá hjá fullorðnum en þar bíði um þrjú þúsund manns eftir greiningu.

„Við erum að tala um að það séu svona fimm þúsund fjölskyldur sem bíða eftir greiningu, og miðað við biðtímann sem afkastagetan býður upp á í dag er þetta bið upp á tvö, þrjú eða tíu ár og það segir sig sjálft að það bíður enginn svo lengi eftir þjónustu,“ segir hann og að eðlilega leiti fólk annað þegar biðin sé svo löng.

Hrannar segir ADHD-samtökin hætt að benda á úrræði stjórnvalda og benda frekar á einkaaðila þar sem þjónustan kostar „helling“ en biðin er ekki jafn löng.

Flöskuhálsinn hjá Geðheilsuteymi barna

Bóas segir flöskuhálsinn þannig að þegar grunur leikur á að barn sé með ADHD fari frumgreining fram innan skólans og skólarnir og sveitarfélögin séu dugleg og næm að meta grun um ADHD og þegar rökstuddur grunur sé kominn þá sé send tilvísun á Geðheilsumiðstöð barna og þar liggi flöskuhálsinn.

„Þar er biðlistinn sem við erum að tala um,“ segir hann og að þegar aðeins sé fjallað um börn með ADHD séu um 1.700 börn.

Á meðan fólk bíði eftir formlegri greiningu komist börnin þó ekki í formleg úrræði til að fá læknisfræðilega meðferð. Kerfið sé ekki búið að viðurkenna vandann og börn bíði á meðan.

„Við gerum mjög háa kröfu á Íslandi um mjög góð vinnubrögð, að greiningarvinna AHDH sé eins og best sé kostið í heiminum,“ segir hann og að það taki vinnu að vinna slíka vinnu. Það sé vel að vera með góð vinnubrögð en það krefjist þess að það sé hægt. Það sé ekki góð þjónusta að bið sé talin í árum.

„Það er hökt og það er stór hluti í lífi barna að vera með eitthvað mögulegt. Börnum er ekki vísað í greiningu að ástæðulausu, það eru einhverjir erfiðleikar og barnið á einhvern vanda,“ segir hann og að í tilfelli barna með ADHD sé mjög áríðandi að bregðast snemma við.

Börnin séu í alvarlegum vanda

Hrannar segir þetta mikilvægan punkt, biðlistinn hjá Geðheilsuteymi, um tvö þúsund börn, sé að verða þrjú ár en áður hafi börnin beðið í tvö eða þrjú ár hjá sveitarfélaginu eftir að komast á þennan lista.

„Þessi börn eru í alvarlegum vanda og þess vegna vísar skólakerfið þeim áfram. Þau eru oft búin að bíða í fimm eða sex ár eftir að fá einhverja lausn sinna mála,“ segir hann og að það segi sig sjálft að skólagangan gangi ekki vel á þeim tíma.

„Þetta er hálf skólagangan,“ segir hann og að þau séu oft eftir á í námi eða félagslega og oft þrói börn með sér aðrar fylgiraskanir og það sé vitað að hvert ár auki á vandann og úrræðin verði þyngri.

„Okkur finnst við vera lítil rödd í þessu,“ segir Bóas en að það séu samt sem áður fimm þúsund skráðir í samtökin. Umboðsmaður barna hafi bent á þetta og Embætti landlæknis sé með viðmið um bið eftir heilbrigðisþjónustu, þrjá mánuði, og þessi bið sé langt umfram það.

Bóas áréttar að það sé faglegt starf unnið alls staðar en starfsfólki sé sniðinn þröngur stakkur.

„Það er ekkert plan hjá hinu opinbera um hvernig á að tækla þetta,“ segir Bóas og að það sé ekki til aðgerðaáætlun um hvernig staðan eigi að vera eftir tvö eða fimm ár.

Fordómar enn í samfélaginu 

Hrannar segir fordóma í samfélaginu gegn þeim sem eru með ADHD og umfangi þess og lyfjunum. Samtökin heyri það ítrekað úr heilbrigðiskerfinu og hann segir sterka áhrifavalda þar sem trúi því ekki að‘ vandinn sé svo umfangsmikill. Hann segir að á Íslandi séum við komin lengra og að innan áratugar verði það viðurkennt að um sjö til tíu prósent séu með ADHD og það þurfi að aðlaga heilbrigðisþjónustuna að þeirri staðreynd.

Bóas segir börn of oft mæta afgangi hjá stjórnvöldum og hann vilji sjá afdráttarlausa áætlun um lausn og leiðir til að bregðast við. Það sé ekki hægt að gera átak í eitt ár. Það þurfi að móta sýn til að mæta vandanum og fjöldanum sem er að koma inn.

Hrannar segir það á plani hjá ríkisstjórninni að ráðast að biðlistum barna en það sé ekki komið neitt haldbært plan um aðgerðir.

„Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum.“

Bóas segir gullið tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til að bregðast við og þeir vilji taka þátt í því samtali.

„Þetta er „win win“ eins og maður segir, fyrir stjórnmálamenn, fjölskyldur, fyrir börn. Þetta er forvörn til að fólk fái rétta greiningu og meðferð á sem stystum tíma.“

#algjört #aðgerðaleysið #getuleysið #hjá #stjórnvöldum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940565d/-adgerdaleysid-og-getuleysid-er-algjort-hja-stjornvoldum-

📰 Aðrar fréttir

Flugvirkjar funda með Icelandair hjá ríkissáttasemjara
📅 28.09.2026 👁️ 0
Flugvirkjar funda með Icelandair hjá ríkissáttasemjara
Samninganefndir Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair funda hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu. Fyrsti fundur samninganefndanna eftir verkfall flugvir...
Three dead, including child, in Channel crossing attempt
📅 28.09.2026 👁️ 0
Three dead, including child, in Channel crossing attempt
A 10-year-old child and two 30-year-old women were on board the boat - which was carrying 105 people.
Vikan á Instagram: „Maður getur látið sér dreyma“
📅 28.09.2026 👁️ 0
Vikan á Instagram: „Maður getur látið sér dreyma“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Lækka verð á nær þúsund vörum
📅 28.09.2026 👁️ 0
Lækka verð á nær þúsund vörum
Stjórnendur Haga hafa ákveðið að lækka verð á hátt í þúsund vörum um tvö prósent til áramóta. Þetta eru vörur sem Bónus og Hagkaup hafa til sölu í ver...
Vilja form­lega af­sökun frá Selenskí - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Vilja form­lega af­sökun frá Selenskí - Vísir
Úkraínumenn hafna því að samið hafi verið um að ekki yrði sagt frá því hvar hermennirnir enduðu. Í kjölfarið gaf Seoung Ghi-hong, ráðgjafi Lee, út yfi...
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
📅 28.09.2026 👁️ 0
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu Laugaból 2 Fallegt og rúmgott einbýlishús á rúmlega 5.000 fermetra eignarlóð við Reykjahlíða...
Svipta Magyar og tvo aðra þinghelgi
📅 28.09.2026 👁️ 0
Svipta Magyar og tvo aðra þinghelgi
Ungverska þingið samþykkti í dag að svipta þrjá menn þinghelgi vegna rannsókna á því hvort þeir hefðu framið lögbrot.Tveir mannanna voru ráðherrar í v...
Dorrit þvoði hárið í ís­lenskri náttúru - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Dorrit þvoði hárið í ís­lenskri náttúru - Vísir
Sámur, hundurinn hennar, var ekki hrifinn af sólinni og beið þolinmóður eftir að hún væri búin að baða sig. Það fór vel um hann í skugga á bak við ste...
UK diesel price hits all-time high, RAC says
📅 28.09.2026 👁️ 0
UK diesel price hits all-time high, RAC says
The US-Israel war with Iran has caused fuel prices to soar.
Bodhana Sivanandan: British schoolgirl becomes youngest woman grandmaster
📅 28.09.2026 👁️ 0
Bodhana Sivanandan: British schoolgirl becomes youngest woman grandmaster
The 11-year-old has broken another chess record after a remarkable performance representing England.
Trump vill fleiri bensín­háka á göturnar - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Trump vill fleiri bensín­háka á göturnar - Vísir
Með breytingunum á kröfum um sparneytni er áætlað að meðaleldsneytiseyðsla fólksbíla og jeppa verði um 6,8 lítrar á hundrað kílómetra (34,5 mílur á ga...
Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir - Vísir
Þetta segir Narfi Hjartarson, skógarvörður Þjóðskóganna á Vesturlandi, í samtali við Bítið í morgun. Hann birti á dögunum færslu á Facebook-hópnum Fun...
Einn merkasti sögustaður landsins á krossgötum
📅 28.09.2026 👁️ 0
Einn merkasti sögustaður landsins á krossgötum
Landbúnaðarháskólinn á Hólum hefur frá og með þessu hausti verið sameinaður Háskóla Íslands og ákveðin óvissa ríkir um starfsemina á Hólum enda er hlu...
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð
📅 28.09.2026 👁️ 0
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð Magda­lena And­ers­son, leið­togi sænskra jafn­að­ar­manna, seg­ir við­ræð­ur við hina þrjá flokk­...
Jay Slater’s mother returns to Tenerife ahead of new documentary about his death
📅 28.09.2026 👁️ 0
Jay Slater’s mother returns to Tenerife ahead of new documentary about his death
The mother of British teenager Jay Slater has returned to Tenerife to retrace her son's final journey and seek answers about the circumstances surroun...
Upplausnarástand ef ekki næst saman
📅 28.09.2026 👁️ 1
Upplausnarástand ef ekki næst saman
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, segir að það séu helst stjórnvöld og sveitarfélög sem ekki hafi staðið vaktina í baráttunni ...
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna
📅 28.09.2026 👁️ 1
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir Mynd: Golli Hjónin Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdót...
Angela Scanlon to take over Sara Cox's drivetime slot on Radio 2
📅 28.09.2026 👁️ 0
Angela Scanlon to take over Sara Cox's drivetime slot on Radio 2
The station also announces a new presenter for its country show after Bob Harris's departure.
Segist hafa gefist upp á stjórnar­myndun í Sví­þjóð - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Segist hafa gefist upp á stjórnar­myndun í Sví­þjóð - Vísir
Í umfjöllun sænska ríkisútvarpsins kemur fram að Andersson hafi boðað til blaðamannafundar vegna málsins í morgun. Hún segir viðræður við vinstriflokk...
Er í lagi að verslanir láti hvatvísa, tækniblinda eða greindarskerta borga meira?
📅 28.09.2026 👁️ 2
Er í lagi að verslanir láti hvatvísa, tækniblinda eða greindarskerta borga meira?
Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, hefur á sínum ferli rannsakað hegðun fólks í verslunum og hefur yfirgripsmikl...
Breytingar í veðrinu á morgun: „Búist við mikilli rigningu“
📅 28.09.2026 👁️ 2
Breytingar í veðrinu á morgun: „Búist við mikilli rigningu“
Búast má við því að veður í dag verði með svipuðu móti og það var um helgina, norðan strekkingur og vætusamt á Vestfjörðum en annars mun hægari vindur...
Guðmundur verndari
📅 28.09.2026 👁️ 2
Guðmundur verndari
Guðmundur verndari Guðmundur Ari Sigurjónsson Mynd: Víkingur Ljóst er að margir þingmenn og landsmenn séu ennþá að klóra sér í hausnum vegna ræðu Guðm...
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn
📅 28.09.2026 👁️ 2
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn
Ekki er möguleiki á að mynda ríkisstjórn, segir Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð. Hún segir að Vinstriflokkurinn hafi tilkynnt sé...
Far­þegi hand­tekinn í Hollandi vegna skemmdarverka - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Far­þegi hand­tekinn í Hollandi vegna skemmdarverka - Vísir
Haft er eftir Ásdísi Ýr Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa Icelandair, í frétt RÚV að samkvæmt verklagi hafi verið haft samband við lögregluna. Hún vild...
Danski leik­stjórinn setti vini sínum afar­kosti - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Danski leik­stjórinn setti vini sínum afar­kosti - Vísir
Fjallað er um áfengisfíkn leikarans í nýjum sjónvarpsþætti í danska ríkisútvarpinu, en tekið fram að leikarinn hafi nú verið edrú í tólf ár. Þar er ræ...
Olíuverð hækkar enn á ný
📅 28.09.2026 👁️ 2
Olíuverð hækkar enn á ný
Olíuverð hækkaði í dag og fór í 107 dollara á fatið. Þar með gengur til baka lækkun föstudagsins, hún var vegna þess að Íranar greindu frá því að þeir...
Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni - Vísir
Swift tileinkaði hinni látnu Dolly Parton verðlaunin og kallaði hana „hina fullkomnu showgirl“. Swift hlaut einnig ný verðlaun sem voru veitt í fyrsta...
Wildfire alert lifted in Gran Canaria after three fires in four days
📅 28.09.2026 👁️ 2
Wildfire alert lifted in Gran Canaria after three fires in four days
Gran Canaria's wildfire alert has been lifted this morning (Monday) after firefighters dealt with three separate outbreaks across the island over the ...
Skil næstu lægðar nálgast - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Skil næstu lægðar nálgast - Vísir
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að með lægðaskilunum muni fylgja rigning og að á eftir hádegi á morgun ger...
Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
📅 28.09.2026 👁️ 2
Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi Saumavél Mynd: Bozhin Karaivanov/Unsplash Harðlega er deilt á Kölska í nýlegri umræðu á Reddit þar sem s...
Tveir í fangaklefum eftir slagsmál
📅 28.09.2026 👁️ 2
Tveir í fangaklefum eftir slagsmál
Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók tvo menn í gærkvöld og vistaði þá yfir nótt vegna líkamsárásar.Mennirnir lentu í áflogum. Þegar lögregla kom á ...
Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða - Vísir
Ferðin var farin á vegum pílatesklúbbs World Class og samfélagsmiðlarnir fylltust algjörlega af svakalegum skvísumyndum, lífi og fjöri frá eyjunni. Hó...
Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
📅 28.09.2026 👁️ 2
Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum Hafnarfjörður Mynd: Hafnarfjarðarbær Nokkuð var um útköll hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og...
Telur Viðskiptaráð hafa tekið á sig of mikla sök
📅 28.09.2026 👁️ 2
Telur Viðskiptaráð hafa tekið á sig of mikla sök
Telur Viðskiptaráð hafa tekið á sig of mikla sök Fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Ís­lands fer í gegn­um um­deild­ar grein­ing­ar og við­brögð við þ...
Ríkasta kona Rússlands og árásirnar á fyrirtæki hennar Wildberries
📅 28.09.2026 👁️ 2
Ríkasta kona Rússlands og árásirnar á fyrirtæki hennar Wildberries
Úkraínuher hefur frá miðjum júlí gert yfir tuttugu árásir á vöruhús og byggingar Wildberries-netverslunarinnar í Rússlandi. Árásirnar hafa markað ákve...
Strekkingur og væta á Vestfjörðum
📅 28.09.2026 👁️ 2
Strekkingur og væta á Vestfjörðum
Veðrið í dag verður nokkur endurtekning á því sem landsmenn upplifðu um helgina. Á Vestfjörðum verður strekkingur og vætusamt. Annars staðar verður mu...
Rann­saka mögu­leg tengsl Íran við meinta hryðju­verka­menn - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Rann­saka mögu­leg tengsl Íran við meinta hryðju­verka­menn - Vísir
Í frétt Guardian segir fyrstu niðurstöður rannsakenda á efninu sem fannst í bílunum bendi til þess að um heimatilbúnar sprengjur sé að ræða. Í yfirlýs...
Að­eins samninga­viðræður geti leyst deiluna - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Að­eins samninga­viðræður geti leyst deiluna - Vísir
Íranir kynntu tillöguna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í síðustu viku en hún var send til Bandaríkjastjórnar í gegnum sáttasemjara fr...
Tvær líkamsárásir og tilkynnt um lausa hesta
📅 28.09.2026 👁️ 2
Tvær líkamsárásir og tilkynnt um lausa hesta
Einn var handtekinn í Hlíðunum í gær eða nótt vegna líkamsárásar og var maðurinn vistaður í fangageymslu samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæ...
NASA astronauts land in Lanzarote to train for moon and mars missions
📅 28.09.2026 👁️ 2
NASA astronauts land in Lanzarote to train for moon and mars missions
Lanzarote has once again become a training ground for space exploration, with astronauts using the island's volcanic landscape to prepare for future s...
Watch: Madonna and Taylor Swift win big at the MTV VMAs
📅 28.09.2026 👁️ 2
Watch: Madonna and Taylor Swift win big at the MTV VMAs
Taylor Swift, Madonna, and LISA were among the big winners at the MTV Video Music Awards (VMAs) on Sunday evening in downtown Los Angeles.
Lög­regla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Lög­regla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti - Vísir
Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu í Konukot til að stilla til friðar vegna rifrildis á milli tveggja kvenna sem þar dvelja. Í dagbók kemur einnig fra...
Til­kynnt um tvær líkams­á­rásir - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Til­kynnt um tvær líkams­á­rásir - Vísir
Í dagbók kemur einnig fram að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu í fjölbýlishús í Hafnarfirði vegna mikils samkvæmishávaða. Í dagbók kemur fram að...
Björgunarskipið Unnur leysir Vörð II af hólmi
📅 28.09.2026 👁️ 2
Björgunarskipið Unnur leysir Vörð II af hólmi
Nýtt björgunarskip Landsbjargar sigldi inn í Patrekshöfn í gær. Það hlaut nafnið Unnur, dregið af slysavarnadeildinni Unni sem sinnir fjölbreyttu fjár...
Sabotage investigated after 1,000-litre spill at Tenerife treatment plant
📅 28.09.2026 👁️ 2
Sabotage investigated after 1,000-litre spill at Tenerife treatment plant
An investigation has been launched after around 1,000 litres of liquid containing ferric chloride spilled at the Punta Brava wastewater treatment plan...
Police block Orange Order from controversial parade route
📅 28.09.2026 👁️ 2
Police block Orange Order from controversial parade route
They had been unable to make the permitted parade on Sunday morning because protesters had gathered on the mainly-nationalist Garvaghy Road.
Drumcree parade: Police block Orange Order from controversial parade route
📅 28.09.2026 👁️ 2
Drumcree parade: Police block Orange Order from controversial parade route
They had been unable to make the permitted parade on Sunday morning because protesters had gathered on the mainly-nationalist Garvaghy Road.
Níu Serbar handteknir vegna gruns um stríðsglæpi í Kósóvóstríðinu
📅 28.09.2026 👁️ 2
Níu Serbar handteknir vegna gruns um stríðsglæpi í Kósóvóstríðinu
Lögregluyfirvöld í Kósóvó handtóku níu Serba í norðurhluta Kósóvó í gær vegna gruns um stríðsglæpi sem þeir eiga hafa framið á tíunda áratugnum.Tvær f...
Níu Serbar handteknir vegna gruns um nýuppgötvaða stríðsglæpi í Kósóvóstríðinu
📅 28.09.2026 👁️ 2
Níu Serbar handteknir vegna gruns um nýuppgötvaða stríðsglæpi í Kósóvóstríðinu
Lögregluyfirvöld í Kósóvó handtóku níu Serba í norðurhluta Kósóvó í gær vegna gruns um stríðsglæpi sem þeir eiga hafa framið á tíunda áratugnum.Tvær f...
Thousands of illegal ghost plates on cars revealed by new cameras
📅 28.09.2026 👁️ 2
Thousands of illegal ghost plates on cars revealed by new cameras
Illegal registration plates are far too easy to get hold of and are putting the public at risk, BBC is told.