Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Nokkuð var um útköll hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Meðal verkefna voru tvær líkamsárásir, hávaðakvartanir og aðstoð vegna einstaklings sem var í annarlegu ástandi eftir fíkniefnaneyslu.
Lögregla handtók mann í Reykjavík vegna líkamsárásar. Var hann færður á lögreglustöð og vistaður í fangageymslu.
Þá var lögregla kölluð til vegna annarrar líkamsárásar í miðborg Reykjavíkur. Árásaraðilinn hafði hins vegar flúið af vettvangi áður en lögreglumenn komu á staðinn.
Einnig var óskað eftir aðstoð lögreglu í Konukoti þar sem tveir skjólstæðingar áttu í háværu rifrildi. Lögregla kom á staðinn til að stilla til friðar.
Í Hafnarfirði barst lögreglu kvörtun vegna mikils samkvæmishávaða í fjölbýlishúsi. Húsráðanda var gert að lækka hávaðann og hafa hemil á gestum sínum.
Lögregla og sjúkralið voru jafnframt kölluð til vegna einstaklings í Breiðholti sem var í annarlegu ástandi vegna neyslu fíkniefna.
Óvenjulegra verkefni beið lögreglu í Reykjavík, nánari tiltekið í póstnúmeri 113, þar sem tilkynnt var um lausa hesta fyrir utan girðingu.