Landbúnaðarháskólinn á Hólum hefur frá og með þessu hausti verið sameinaður Háskóla Íslands og ákveðin óvissa ríkir um starfsemina á Hólum enda er hluti kennsluhúsnæðis ónothæfur sem stendur vegna myglu.
Gunnar Rögnvaldsson, fyrrverandi nemandi og starfsmaður Hólaskóla, segir Hólastað vera einn af merkustu sögu- og menningarstöðum þjóðarinnar og það þurfi að hugsa um hann með þeirri virðingu sem hann á skilið.
Auðvitað finnst okkur; heimamönnum og velunnurum að hið opinbera sem er eigandi Hólajarðarinnar og ber ábyrgð á húsnæðinu, jörðinni sem slíkri og staðarhaldi, hafi bara alls ekki staðið sig nógu vel síðastliðin tuttugu ár. Hólar með sína falllegu staðarmynd sem er á málverkum á næstum því öðru hverju heimili hefur sinn sjarma en það þarf líka að hugsa um þessa staðarmynd, segir Gunnar.
Þar vísar hann bæði í viðhald húsakosts og umhirðu staðarins svo sem slátt og annað. Njólinn hafi sem dæmi fengið óáreittur að setja mark sitt á staðinn. „Hólar eiga sér auðvitað mjög merkilega sögu. Þarna var biskupsstóll og skóli í kjölfarið. Þarna voru flestallar bækur á Íslandi prentaðar í 300 ár.“
Íbúar á Hólum standi jafnfætis öðrum í Skagafirði
Magnús Barðdal, sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagafjarðar, segir að nú þegar sé búið að leggja drög að því að bæta útlit og ímynd Hólastaðar á ný.
Það er búið að gera samning milli sveitarfélagsins og ríkisins sem gengur út á að sveitarfélagið tekur yfir þann hluta jarðarinnar þar sem byggðin er. Með þessum samningi getum við nú farið að þjónusta íbúana og svæðið með sama hætti og aðra þéttbýliskjarna í Skagafirði.
Jóhanna Ey Harðardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Skagafirði, bætir við að þessi samningur skipti sköpum hvað varðar uppbyggingu Hólastaðar sem íbúakjarna. „Þar getum við núna skipulagt og úthlutað fleiri lóðum, sinnt þjónustu eins og garðslætti á opnum svæðum, snjómokstri og öðru. Þannig að íbúar þar standi jafnfætis öðrum í þéttbýli í Skagafirði."
Háskólinn verður aðildarháskóli HÍ
Í sumar var undirritaður samningur um háskólastæðu Háskóla Íslands. Með því var Háskólinn á Hólum aðildarháskóli að HÍ og ber nú nafnið Háskóli Íslands á Hólum.
Hólmfríður Sveinsdóttir sem var rektor Háskólans á Hólum er nú forseti HÍ að Hólum. Hún segir stöðu skólans vera góða. „Aðsóknin hefur aukist og við höfum aldrei fengið fleiri til okkar á Nýnemadögum háskólanna. Þannig að staðan varðandi nemendur er góð. Við erum að finna fyrir breytingum með stofnun háskólasamstæðunnar. Við getum boðið upp á mun breiðari þjónustu og á sama tíma höldum við þessari nálægð og því sem einkennir lítið skólasamfélag."
Gamla skólahúsið á Hólum sem er teiknað af tveimur mestu og þekktustu arkitektum þjóðarinnar Rögnvaldi Ólafssyni og Guðjóni Samúelssyni liggur undir skemmdum. Það hefur komið upp mygla þar. Sömuleiðis í öðru stóru húsi, svokölluðu Búshúsi og þetta eru náttúrulega einkennisbyggingar ásamt kirkjunni og kirkjuturninum. Fyrir vikið hefur þurft að flytja nánast alla starfsemi úr skólahúsinu. Hólar eru einn af merkustu stöðum þjóðarinnar ásamt Þingvöllum og Skálholti,“ segir Gunnar.