Samninganefndir Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair funda hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu. Fyrsti fundur samninganefndanna eftir verkfall flugvirkja í síðustu viku var á föstudag.
Ríkissáttasemjari sagði eftir fundinn á föstudag að samninganefndirnar hefðu sammælst um að vinna áfram á grundvelli innanhússtillögu ríkissáttasemjara sem lögð var fram um þarsíðustu helgi og að nú yrði einblínt á þau atriði sem ekki náðist saman um í aðdraganda verkfallsins.