Hagar hafa í dag lækkað verð á hátt í 1.000 vörum í Bónus og Hagkaup um 2% og gildir lækkunin til áramóta.Í tilkynningu kemur fram að um sé að ræða stóran hluta eigin innflutnings Haga, fjölbreytt úrval af dagvöru fyrir heimili í nánast öllum vöruflokkum: almenn hilluvara, frystivara, kælivara, drykkjarvörur, hreinlætisvörur og snyrtivörur.Í Bónus tekur lækkunin til á bilinu 15 til 20% af vöruúrvali verslana. Verð þessara vara verður ekki hækkað á tímabilinu en getur lækkað frekar, t.d. ef innkaupsverð lækkar.
Bónus og Hagkaup lækka verð á um 1.000 vörum