„Eins og þegar ein­angrunar­plasti er strokið eftir gler­rúðu“ - Vísir

„Eins og þegar ein­angrunar­plasti er strokið eftir gler­rúðu“ - Vísir

„Eins og þegar ein­angrunar­plasti er strokið eftir gler­rúðu“ - Vísir

Björn var í útvarpsviðtali vegna nýrrar bókar sinnar „Ókunnugt fólk“. Þar varð honum á að segja „þeim langar“, sem flokkast undir þágufallssýki og tvítaka þá villu. Í kjölfarið fékk hann það óþvegið á Málspjalli jafnvel þó að Eiríkur hafi þar hamrað á því að í slíkum aðfinnslum gæti ekki falist nein ást á íslenskunni.

Vilja ekki lesa bókina eftir að höfundur varð uppvís af þágufallssýki

„Æi, mér finnst alltaf erfitt að hlusta á svona… ja, maður má víst ekki kalla það málvillur lengur,“ segir Ragnheiður Gestsdóttir eftir að Auður Aðalsteinsdóttir hafði opnað fyrir umræðuna með því að segja: „Ó ó … var að hlusta á viðtal við rithöfund sem var að segja frá nýútkominni bók sinni og tvítók: Þá langar … þá langar. Nú langar „mig“ ekkert til að lesa þessa bók eftir þetta. Er kannski fullviðkvæm fyrir þessu eða hvað?“

Í athugasemdum við téð viðtal við Björn felst reyndar nokkur gagnrýni á stefnu Eiríks. Fríður María Halldórsdóttir segist vel skilja þetta: „Finnst sorglegt að ekki „megi“ leiðrétta svona eins og annað sem þykir orðið eðlilegt af því að margir tala svona, og þykir það bara í lagi. Rétt eins og 2+2 verða ekki 5 þótt margir muni segja það, og rétt eins og slettur sem aldrei er sett út á festast af því að það er leiðrétt.“

Bergþóra Einarsdóttir segist skilja þetta fullkomlega: „Læsi ekki verk eftir þennan rithöfund!“ Jóhanna Guðríður Ólafsson tekur í sama streng og það gerir Heiðrún Hauksdóttir einnig: „Heyrði þetta líka áðan og þótti sorglegt og óþægilegt – sérstaklega þegar hann endurtók þetta.“

Halldór botnar umvandanirnar

Það er svo Halldór Gunnarsson sem botnar óánægju kvennanna með afgerandi hætti: „Þágufallssýkin virkar á mig eins og falskur tónn eða hljóðið þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu. Það slær ekkert á tilfinninguna að segja að þetta sé eðlileg málþróun, þótt það séu sprenglærðir málvísindamenn. Að sjálfsögðu læsi ég aldrei bókstaf eftir þennan höfund. Nóg er nú samt.“

Björn er upprennandi höfundur og hefur hlotið góða dóma fyrir verk sín en áður en Ókunnugt fólk kom út hefur hann sent frá sér smásagnasafnið Smágælpi og skáldsöguna Stol.forlagið

Birni sárnar þetta að vonum og nú hefur hann skrifað einlægan pistil sem hann birtir á Málspjallinu:

„Á laugardaginn beið ég við viðtækið þar sem átti að flytja viðtal við mig um nýju skáldsöguna mína. Ég var stressaður, hafði verið illa sofinn og í flensumóki í viðtalinu og óttaðist að ég hefði ekki staðið mig nógu vel gagnvart bókinni minni, sem ég hafði unnið að í fjögur-fimm ár en var bara nýbyrjaður að tala um opinberlega.“

Björn gengur úr Málspjalli

Björn segir að sér hafi létt eftir að hafa hlustað á viðtalið sem honum fannst koma ágætlega út og Jói í Bara bækur fór að hans mati með umræðuna á forvitnilegar slóðir.

„Það var því heldur svekkjandi seinna um kvöldið þegar ég sá að hér inni hafði sprottið upp umræða þar sem nokkrir meðlimir þessa hóps lýstu því yfir að sökum þessa viðtals væru þeir búnir að afskrifa bókina mína og mig sem höfund algjörlega og myndu aldrei lesa bókstaf eftir mig. Ekki út af neinu sérstöku sem ég sagði, heldur út af því að ég hafði gerst sekur um að nota vitlaust fall í talmáli mínu. „Sorglegt og óþægilegt,“ eins og einn meðlimur Málspjallsins orðaði það.“

Björn segist hafa reynt að hlæja að hinum umvandandi Málspjöllurum en sannleikurinn var sá að þetta tal særði hann og þótt stöku varnarræða hafi litið dagsins ljós gekk hann úr grúbbunni.

„Ástæðan fyrir því að ég tók þetta svona nærri mér er líklega að þetta er ekki í fyrsta (og líklega ekki í síðasta) sinn sem ég fæ að heyra að tungumálið sem ég hef lesið, talað og skrifað alla mína ævi sé ekki nógu gott og ég þar með ekki gjaldgengur fulltrúi þess.“

Ekki vottur af þágufallssýki í bókinni

Nokkurt fát hefur orðið í hópnum eftir að Björn birti pistil sinn og hefur Eiríkur Rögnvaldsson skrifað harðorða ádrepu þar sem hann hundskammar þá sem vilja hnýta í þágufallssýkina:

Eiríkur Rögnvaldsson hefur gripið í taumana og skorar á þá sem vilja vera með aðfinnslur sem þessar yfirgefi hópinn.vísir/lýður valberg

„Hér varð í gær býsna dapurleg umræða af því tilefni að rithöfundur hafði sagt „þeim langar“ í viðtali um nýja bók sína. Málshefjandi sagði að þetta hefði valdið því að hún hefði engan áhuga á að lesa umrædda bók, og í umræðunni tóku margir þátttakendur í sama streng og lýstu andúð sinni á þessari málnotkun,“ skrifar Eiríkur. Hann segist reyndar vera búinn að lesa bókina.

„Og get fullyrt að hún er sérlega vel skrifuð og í henni er ekki vottur af hinni illræmdu „þágufallssýki“. Það eru auðvitað ótrúlegir og óþolandi fordómar að dæma bók af einu orðalagi höfundar í viðtali, en lýsir vel þeirri sérkennilegu stöðu sem þessi málbreyting hefur í huga margra. Það er jafnvel eins og fólk sem talar þannig verði „óhreint“ eins og dæmið sem hér er til umræðu sýnir.“

Vill að umvandararnir yfirgefi hópinn

Eiríkur segir, eins og margoft hefur komið fram, hópurinn hafa verið stofnaður til að efla jákvæða og uppbyggjandi umræðu um íslenskt mál.

„Umræðan í gær var dæmi um hið gagnstæða – neikvæða umræðu þar sem talað var niður til fólks og það dæmt eftir málfari og höfundur jafnvel afskrifaður vegna málnotkunar í viðtali. Slíkt á ekki að viðgangast og er í raun alveg óþolandi. Ég legg því til að þið sem hafið það viðhorf til málfars sem hér hefur verið lýst gangið úr þessum hópi – hann er greinilega ekki fyrir ykkur.“

Og Eiríkur bendir á að umvandararnir miklu þurfi ekki að örvænta:

„Það er annar vettvangur sem hentar ykkur betur – þessi umræða hefði sómt sér vel í „Málvöndunarþættinum“. Þar lifa málfarsfordómar og hneykslun á málfari almennings góðu lífi.“

#eftir #einangrunarplasti #eins #strokið #þegar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940624d/-eins-og-thegar-ein-angrunar-plasti-er-strokid-eftir-gler-rudu-

📰 Aðrar fréttir

Valkvæð einkamál Samfylkingar og þögn Kristrúnar
📅 28.09.2026 👁️ 0
Valkvæð einkamál Samfylkingar og þögn Kristrúnar
Valkvæð einkamál Samfylkingar og þögn Kristrúnar Fréttin28. september 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Arna Lára Jónsdóttir og Guðmundur Ing...
Ragnar þurfti krabbamein til að vakna: „Ég er búinn að hlaupa í hringi í 50 ár“
📅 28.09.2026 👁️ 0
Ragnar þurfti krabbamein til að vakna: „Ég er búinn að hlaupa í hringi í 50 ár“
Ragnar Agnarsson segir að krabbamein sem hann fékk hafi kennt honum að lifa upp á nýtt og sé það besta sem hafi komið fyrir hann.Ragnar, sem var um ár...
Um 20 sagt upp hjá Arion banka
📅 28.09.2026 👁️ 0
Um 20 sagt upp hjá Arion banka
Um það bil 20 starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Arion banka. Flestar uppsagnirnar taka gildi nú þegar. Þetta staðfestir Haraldur Guði Eiðsson, for...
Harðari tónn en áður hafi verið sleginn - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Harðari tónn en áður hafi verið sleginn - Vísir
Í ræðunni sagði Þorgerður siðferðislega hugleysingja vera þá sem neita að semja um frið, komi í veg fyrir að mannúðaraðstoð berist til þeirra sem þurf...
Svindlaði í búðum með því að nota vitlausa strikamiða
📅 28.09.2026 👁️ 0
Svindlaði í búðum með því að nota vitlausa strikamiða
Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjársvik. Hann stundaði það um nokkurra mánaða skeið ...
Upp­sagnir, undar­leg taktík og um­töluð ræða - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Upp­sagnir, undar­leg taktík og um­töluð ræða - Vísir
Í hádegisfréttum verður rætt við Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnamálafræðing sem segir ekki um breytingu að ræða í utanríkisstefnu Íslands se...
Watch: Were the RAF Fairford arrests 'pure luck'?
📅 28.09.2026 👁️ 0
Watch: Were the RAF Fairford arrests 'pure luck'?
Five men have been arrested on suspicion of explosive and terrorism offences after a major incident was declared at an airbase in the west of England.
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys
📅 28.09.2026 👁️ 0
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys Lög­regl­an hef­ur rætt við um tíu vitni sem voru á vett­vangi þeg­ar bana­slys átti sér stað á Krý...
Spurði Xi hvort hann vildi kaupa banda­rísk vopn - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Spurði Xi hvort hann vildi kaupa banda­rísk vopn - Vísir
Trump vildi með þessu meina að Bandaríkjamenn seldu vopn víða um heim og salan til Taívan væri ekki einstök. Xi og aðrir ráðamenn í Kína hafa reynt að...
Lithium-ion battery fire killed Bootle mum and three children
📅 28.09.2026 👁️ 0
Lithium-ion battery fire killed Bootle mum and three children
Elisha Brabin, 36, and three of her children, died after a blaze at their home in Bootle, Merseyside.
Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum - Vísir
Alaska hefur alla tíð haft mikla ástríðu fyrir tónlist og hefur listformið verið henni haldreypi í gegnum erfiða tíma. Hún gaf út fyrsta lagið sitt, H...
Hanna Katrín segir Guðrúnu geta látið sig dreyma: „Þetta er töluverð óskhyggja hjá henni“
📅 28.09.2026 👁️ 1
Hanna Katrín segir Guðrúnu geta látið sig dreyma: „Þetta er töluverð óskhyggja hjá henni“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að umræðan í kringum brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherrastóli ekki hafa nein áhrif ...
Bónus og Hagkaup lækka verð á um 1.000 vörum
📅 28.09.2026 👁️ 1
Bónus og Hagkaup lækka verð á um 1.000 vörum
Hagar hafa í dag lækkað verð á hátt í 1.000 vörum í Bónus og Hagkaup um 2% og gildir lækkunin til áramóta.Í tilkynningu kemur fram að um sé að ræða st...
Mansal á Íslandi: Segir karla af erlendum uppruna neyða konur til að verða ófrískar
📅 28.09.2026 👁️ 1
Mansal á Íslandi: Segir karla af erlendum uppruna neyða konur til að verða ófrískar
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir íslenskt réttarvörslukerfi standa frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals, sem er skuggama...
Mikil ólga í Hafnarfirði vegna 260 íbúða: „Samkomulagið vekur fleiri spurningar en það svarar“
📅 28.09.2026 👁️ 1
Mikil ólga í Hafnarfirði vegna 260 íbúða: „Samkomulagið vekur fleiri spurningar en það svarar“
Deilur um fyrirhugaða uppbyggingu 260 íbúða fyrir tímabundna búsetu á Völlunum í Hafnarfirði halda áfram að magnast.Einar Geir Þorsteinsson, fulltrúi ...
Sjö sakaðir um að nauðga sam­nemanda klukku­stundum saman - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Sjö sakaðir um að nauðga sam­nemanda klukku­stundum saman - Vísir
Konan heldur því fram að henni hafi verið byrlað og hópnauðgað í margar klukkustundir og að háskólinn hafi brugðist skyldu sinni til að vernda hana eð...
Ekið á fimm ára barn á hjóli - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Ekið á fimm ára barn á hjóli - Vísir
Atvikið átti sér stað í Hveragerði og var barnið á hjóli þegar ekið var á það. Þetta staðfestir vakthafandi lögreglufulltrúi á Suðurlandi í samtali vi...
Sá grímuklædda menn nærri herflugvellinum og hringdi í neyðarlínuna
📅 28.09.2026 👁️ 0
Sá grímuklædda menn nærri herflugvellinum og hringdi í neyðarlínuna
Bóndi sem hringdi á neyðarlínuna í Bretlandi segist hafa séð hóp grímu- og hettuklæddra manna nálægt Fairford-flugvelli breska hersins þegar hún var á...
Krabba­meinið það besta sem hafi komið fyrir hann - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Krabba­meinið það besta sem hafi komið fyrir hann - Vísir
„Þessi karakter sem ég var og þetta leikrit sem ég var í hentaði mér á þeim tíma. En síðan kemur tímapunktur þar sem þetta hættir að meika sens og þá ...
Flugvirkjar funda með Icelandair hjá ríkissáttasemjara
📅 28.09.2026 👁️ 2
Flugvirkjar funda með Icelandair hjá ríkissáttasemjara
Samninganefndir Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair funda hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu. Fyrsti fundur samninganefndanna eftir verkfall flugvir...
Three dead, including child, in Channel crossing attempt
📅 28.09.2026 👁️ 2
Three dead, including child, in Channel crossing attempt
A 10-year-old child and two 30-year-old women were on board the boat - which was carrying 105 people.
Vikan á Instagram: „Maður getur látið sér dreyma“
📅 28.09.2026 👁️ 2
Vikan á Instagram: „Maður getur látið sér dreyma“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Lækka verð á nær þúsund vörum
📅 28.09.2026 👁️ 2
Lækka verð á nær þúsund vörum
Stjórnendur Haga hafa ákveðið að lækka verð á hátt í þúsund vörum um tvö prósent til áramóta. Þetta eru vörur sem Bónus og Hagkaup hafa til sölu í ver...
Vilja form­lega af­sökun frá Selenskí - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Vilja form­lega af­sökun frá Selenskí - Vísir
Úkraínumenn hafna því að samið hafi verið um að ekki yrði sagt frá því hvar hermennirnir enduðu. Í kjölfarið gaf Seoung Ghi-hong, ráðgjafi Lee, út yfi...
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
📅 28.09.2026 👁️ 2
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu Laugaból 2 Fallegt og rúmgott einbýlishús á rúmlega 5.000 fermetra eignarlóð við Reykjahlíða...
Svipta Magyar og tvo aðra þinghelgi
📅 28.09.2026 👁️ 2
Svipta Magyar og tvo aðra þinghelgi
Ungverska þingið samþykkti í dag að svipta þrjá menn þinghelgi vegna rannsókna á því hvort þeir hefðu framið lögbrot.Tveir mannanna voru ráðherrar í v...
Dorrit þvoði hárið í ís­lenskri náttúru - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Dorrit þvoði hárið í ís­lenskri náttúru - Vísir
Sámur, hundurinn hennar, var ekki hrifinn af sólinni og beið þolinmóður eftir að hún væri búin að baða sig. Það fór vel um hann í skugga á bak við ste...
UK diesel price hits all-time high, RAC says
📅 28.09.2026 👁️ 2
UK diesel price hits all-time high, RAC says
The US-Israel war with Iran has caused fuel prices to soar.
Bodhana Sivanandan: British schoolgirl becomes youngest woman grandmaster
📅 28.09.2026 👁️ 2
Bodhana Sivanandan: British schoolgirl becomes youngest woman grandmaster
The 11-year-old has broken another chess record after a remarkable performance representing England.
Trump vill fleiri bensín­háka á göturnar - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Trump vill fleiri bensín­háka á göturnar - Vísir
Með breytingunum á kröfum um sparneytni er áætlað að meðaleldsneytiseyðsla fólksbíla og jeppa verði um 6,8 lítrar á hundrað kílómetra (34,5 mílur á ga...
Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir - Vísir
Þetta segir Narfi Hjartarson, skógarvörður Þjóðskóganna á Vesturlandi, í samtali við Bítið í morgun. Hann birti á dögunum færslu á Facebook-hópnum Fun...
Einn merkasti sögustaður landsins á krossgötum
📅 28.09.2026 👁️ 2
Einn merkasti sögustaður landsins á krossgötum
Landbúnaðarháskólinn á Hólum hefur frá og með þessu hausti verið sameinaður Háskóla Íslands og ákveðin óvissa ríkir um starfsemina á Hólum enda er hlu...
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð
📅 28.09.2026 👁️ 2
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð Magda­lena And­ers­son, leið­togi sænskra jafn­að­ar­manna, seg­ir við­ræð­ur við hina þrjá flokk­...
„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“ - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“ - Vísir
Greint var frá því fyrir helgi að yfir 2500 börn hafa beðið í meira en þrjá mánuði eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Nýjustu tölur umboðsman...
Jay Slater’s mother returns to Tenerife ahead of new documentary about his death
📅 28.09.2026 👁️ 2
Jay Slater’s mother returns to Tenerife ahead of new documentary about his death
The mother of British teenager Jay Slater has returned to Tenerife to retrace her son's final journey and seek answers about the circumstances surroun...
Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
📅 28.09.2026 👁️ 0
Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja Bogi Nils BogasonEr forstjóri Icelandair Mynd: Aðsend Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Icelandair af rúmlega 1...
Upplausnarástand ef ekki næst saman
📅 28.09.2026 👁️ 2
Upplausnarástand ef ekki næst saman
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, segir að það séu helst stjórnvöld og sveitarfélög sem ekki hafi staðið vaktina í baráttunni ...
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna
📅 28.09.2026 👁️ 2
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir Mynd: Golli Hjónin Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdót...
Angela Scanlon to take over Sara Cox's drivetime slot on Radio 2
📅 28.09.2026 👁️ 2
Angela Scanlon to take over Sara Cox's drivetime slot on Radio 2
The station also announces a new presenter for its country show after Bob Harris's departure.
Segist hafa gefist upp á stjórnar­myndun í Sví­þjóð - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Segist hafa gefist upp á stjórnar­myndun í Sví­þjóð - Vísir
Í umfjöllun sænska ríkisútvarpsins kemur fram að Andersson hafi boðað til blaðamannafundar vegna málsins í morgun. Hún segir viðræður við vinstriflokk...
Er í lagi að verslanir láti hvatvísa, tækniblinda eða greindarskerta borga meira?
📅 28.09.2026 👁️ 2
Er í lagi að verslanir láti hvatvísa, tækniblinda eða greindarskerta borga meira?
Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, hefur á sínum ferli rannsakað hegðun fólks í verslunum og hefur yfirgripsmikl...
Breytingar í veðrinu á morgun: „Búist við mikilli rigningu“
📅 28.09.2026 👁️ 2
Breytingar í veðrinu á morgun: „Búist við mikilli rigningu“
Búast má við því að veður í dag verði með svipuðu móti og það var um helgina, norðan strekkingur og vætusamt á Vestfjörðum en annars mun hægari vindur...
Guðmundur verndari
📅 28.09.2026 👁️ 2
Guðmundur verndari
Guðmundur verndari Guðmundur Ari Sigurjónsson Mynd: Víkingur Ljóst er að margir þingmenn og landsmenn séu ennþá að klóra sér í hausnum vegna ræðu Guðm...
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn
📅 28.09.2026 👁️ 2
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn
Ekki er möguleiki á að mynda ríkisstjórn, segir Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð. Hún segir að Vinstriflokkurinn hafi tilkynnt sé...
Far­þegi hand­tekinn í Hollandi vegna skemmdarverka - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Far­þegi hand­tekinn í Hollandi vegna skemmdarverka - Vísir
Haft er eftir Ásdísi Ýr Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa Icelandair, í frétt RÚV að samkvæmt verklagi hafi verið haft samband við lögregluna. Hún vild...
Danski leik­stjórinn setti vini sínum afar­kosti - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Danski leik­stjórinn setti vini sínum afar­kosti - Vísir
Fjallað er um áfengisfíkn leikarans í nýjum sjónvarpsþætti í danska ríkisútvarpinu, en tekið fram að leikarinn hafi nú verið edrú í tólf ár. Þar er ræ...
Olíuverð hækkar enn á ný
📅 28.09.2026 👁️ 2
Olíuverð hækkar enn á ný
Olíuverð hækkaði í dag og fór í 107 dollara á fatið. Þar með gengur til baka lækkun föstudagsins, hún var vegna þess að Íranar greindu frá því að þeir...
Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni - Vísir
Swift tileinkaði hinni látnu Dolly Parton verðlaunin og kallaði hana „hina fullkomnu showgirl“. Swift hlaut einnig ný verðlaun sem voru veitt í fyrsta...
Wildfire alert lifted in Gran Canaria after three fires in four days
📅 28.09.2026 👁️ 2
Wildfire alert lifted in Gran Canaria after three fires in four days
Gran Canaria's wildfire alert has been lifted this morning (Monday) after firefighters dealt with three separate outbreaks across the island over the ...
Skil næstu lægðar nálgast - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Skil næstu lægðar nálgast - Vísir
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að með lægðaskilunum muni fylgja rigning og að á eftir hádegi á morgun ger...