Atvikið átti sér stað í Hveragerði og var barnið á hjóli þegar ekið var á það. Þetta staðfestir vakthafandi lögreglufulltrúi á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. Hún segir áverka barnsins minniháttar en atvikið sé engu að síður litið alvarlegum augum. Engir eftirmálar verða af málinu að sögn lögreglu.
Ekið á fimm ára barn á hjóli - Vísir