Um það bil 20 starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Arion banka. Flestar uppsagnirnar taka gildi nú þegar. Þetta staðfestir Haraldur Guði Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka. Vísir greindi fyrst frá.
Tilkynnt var um uppsagnirnar í tölvupósti til starfsmanna í morgun. Uppsagnirnar ná til nær allra sviða bankans en flestum sem var sagt upp störfuðu í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni.
Að sögn Haraldar tengjast uppsagnirnar krefjandi starfsumhverfi.
„Við erum að horfa til þess að auka skilvirkni í starfsemi okkar sem er auðvitað viðvarandi verkefni í starfsemi fyrirtækja. Umhverfið um þessar mundir er af ýmsum ástæðum að verða meira krefjandi, við sjáum það meðal annars á því að það er að hægjast á hagkerfinu,“ segir Haraldur.