Hryðjuverkadeild lögreglunnar í Bretlandi hefur upplýst að fimm menn sem voru handteknir í gær séu allir breskir ríkisborgarar búsettir í Lundúnum. Íbúar í grenndinni við Fairford-flugvöllinn urðu varir við hertar öryggisráðstafanir nokkrum dögum áður en mennirnir voru handteknir.
Wes Streeting, varnarmálaráðherra Bretlands, var í viðtali hjá BBC í morgun og sagði ekki tímabært að upplýsa um smáatriði sem tengdust rannsókninni eða hinum handteknu.
En nokkrum klukkustundum síðar greindi hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar frá því að hinir handteknu væru allir breskir ríkisborgarar, allir karlmenn á aldrinum 20–25 ára og frá Lundúnum.
Hryðjuverkadeildin segir einnig að umfangsmikil og gríðarlega flókin aðgerð lögreglu sé enn í gangi og rannsókn á því hvað búi að baki.
Yfirlögregluþjónninn sem ræddi við fjölmiðla segir þau mjög meðvituð um vangaveltur um atvikið og biður um að lögreglan fái svigrúm til að sinna rannsókninni.
Vangavelturnar tengjast einkum aðkomu Bandaríkjahers, sem hefur notað flugvöllinn í stríðinu gegn Íran. Í mars veitti Keir Starmer, þáverandi forsætisráðherra, bandaríska flughernum leyfi til að nota flugvöllinn.
Urðu vör við herta öryggisgæslu
Miðað við fréttir, sem einnig bárust í dag, um að fólk sem býr nærri flugvellinum hafi orðið vart við herta öryggisgæslu allt að fimm dögum fyrir handtökurnar þá virðast bresk yfirvöld hafa verið meðvituð um að eitthvað gæti verið yfirvofandi.
Bóndi sem hringdi á neyðarlínuna í Bretlandi var í viðtali hjá BBC í morgun og sagðist hafa séð hóp grímu- og hettuklæddra manna nálægt Fairford-flugvelli breska hersins þegar hún var á leið heim úr veislu um klukkan hálf tvö aðfaranótt sunnudags.
Hún kaus að koma ekki fram undir nafni í viðtali í útvarpsþættinum Today á BBC. Konan sagði að veginum hefði verið lokað með þremur hvítum sendiferðabifreiðum og hún hefði séð mennina hlaupa á brott.