Hagar hafa lækkað verð á hátt í þúsund vörum í Bónus og Hagkaup fram að áramótum. Forstjóri fyrirtækisins segir það vilja leggja sitt af mörkum þótt verðbólga á matvöru sé talsvert undir því viðmiði sem sett var í kjarasamningum.
Verkalýðsfélögin kölluðu eftir því á dögunum að verðmótandi fyrirtæki legðu sitt af mörkum til að kjarasamningar héldu. Krónan tilkynnti verðfrystingu á 647 vörum í þrjá mánuði, en Prís sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að lágt verð væri ekki tímabundin aðgerð, heldur einföld og skýr stefna.
Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir fyrirtækið hafa gripið til þessara óhefðbundnu aðgerða, að lækka verð, til að leggja sitt af mörkum til að ná stöðugleika.
„Almennt séð erum við ekki hrifin af stuttum átaksverkefnum til að halda aftur af vöruverði. Ástæðan er einfaldlega sú að það er verkefni okkar alla daga; við gerum allt sem við getum til að halda verði eins lágu og hægt er með Bónus fremst í flokki. En staðan núna er kannski aðeins óvenjuleg og þá skiptir gríðarlega miklu máli að samstaða náist milli allra aðila. við erum í raun að leggja okkar af mörkum til að það verði.“
„Aðilar á þessu markaði eru að leggja sitt af mörkum“
Finnur segir atvinnulífið leggja sitt af mörkum í þessari baráttu, ekki síst fyrirtæki á matvörumarkaði.
„Verðbólga á matvörulið neysluvísitölunnar hún er töluvert undir þessum viðmiðum sem sett voru í kjarasamningum og langt undir almennri verðþróun. Ef við horfum núna til fára mánaða, einhverra 5 til 6 mánaða, þá hefur verðbólga í matvöru hækkað um 0,58% sem er nánast við það að hreyfast ekki. Það hefur ekki gerst í langan tíma þannig að á því má merkja að aðilar á þessum markaði eru að leggja sitt af mörkum.“