Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Karl og kona hafa verið dæmd í átta ára fangelsi hvort um sig fyrir að flytja rúmlega 18 kíló af kókaíni til Íslands.
Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness 24. september. Jose Manuel Del Bosque og Cristina Rodriguez Santos voru ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 18.346 grömmum af kókaíni. Styrkleiki efnanna var á bilinu 81 til 83 prósent og taldi ákæruvaldið þau ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.
Parið kom til landsins frá Frankfurt að kvöldi 27. maí. Konan var stöðvuð af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli en maðurinn var þá kominn út úr flugstöðinni. Hann sneri aftur eftir að konan hafði samband við hann. Við gegnumlýsingu á ferðatöskum þeirra kom í ljós óvenjulegur massi í botni beggja taskna og prófanir gáfu jákvæða svörun við kókaíni.
Í annarri töskunni fundust rúmlega 9,1 kíló af kókaíni og rúmlega 9,2 kíló í hinni. Efnunum hafði verið komið fyrir undir fölskum botnum tasknanna.
Við rannsókn málsins fundust jafnframt samskipti í farsíma mannsins sem vöktu athygli lögreglu. Þar á meðal voru samskipti á Telegram við aðila sem notaði notandanafnið SanAndres666. Maðurinn hafði sent viðkomandi skjáskot úr Google Maps þar sem leiðin frá Keflavíkurflugvelli að Ármúla í Reykjavík hafði verið slegin inn. Hann sendi einnig skjáskot þar sem hann hafði spurt ChatGPT hvað það kostaði að taka Flybus og leigubíl á áfangastaðinn. Skömmu fyrir miðnætti tilkynnti hann síðan að hann væri lentur á Íslandi.
Maðurinn sagði síðar við lögreglu að hann hefði sent skjáskotið af leiðinni að Ármúla vegna þess að maður, sem hann kallaði Adam, hefði spurt hvert hann væri að fara og hvað hann væri að gera. Hann sagðist jafnframt hafa spurt Adam hvort einhver gæti sótt þau á flugvöllinn.
Bæði neituðu að hafa vitað af kókaíninu og héldu því fram að ferðin til Íslands hefði verið ætluð til ferðalaga og afþreyingar. Dómurinn taldi framburð þeirra hins vegar ótrúverðugan og í mörgu tilliti með ólíkindablæ. Talið var sannað, hafið yfir skynsamlegan vafa, að þau hefðu gerst sek um þá háttsemi sem þeim var gefin að sök.
Þau voru bæði dæmd í átta ára fangelsi.