Bóndi sem hringdi á neyðarlínuna í Bretlandi segist hafa séð hóp grímu- og hettuklæddra manna nálægt Fairford-flugvelli breska hersins þegar hún var á leið heim úr veislu um klukkan hálf tvö aðfaranótt sunnudags.
Hún kaus að koma ekki fram undir nafni í viðtali í útvarpsþættinum Today á BBC. Konan sagði að veginum hefði verið lokað með þremur hvítum sendiferðabifreiðum og hún hefði séð mennina hlaupa á brott.
Wes Streeting, varnarmálaráðherra Bretlands, var einnig í viðtali hjá BBC í morgun og þakkaði almenningi árvekni og þolinmæði. Hann sagðist stoltur af starfi lögreglu og öðrum sem komu að handtökunni en ekki væri tímabært að upplýsa um smáatriði sem tengdust rannsókninni.
„Þetta er ekki rétti tíminn fyrir mig til þess að velta vöngum yfir smáatriðum eins og hverjir hinir handteknu eru eða hvað þeim hugsanlega gekk til. Við munum að sjálfsögðu upplýsa almenning um leið og mögulegt er. Við skiljum vel að fólk hafi bæði áhuga og áhyggjur en ég vil biðja um smá þolinmæði og að lögregla og öryggissveitir fái svigrúm og tíma til að sinna sínu starfi. Þau eru að vinna hratt og af fagmennsku og við veitum frekari upplýsingar um leið og mögulegt er,“ sagði Streeting.
Stórt svæði var girt af og hryðjuverkadeild lögreglu og sprengjusérfræðingar hersins kallaðir til í gær.
Fimm menn voru handteknir, grunaðir um brot á lögum um sprengiefni og undirbúning hryðjuverka.
Fairford-herflugvöllurinn er notaður undir stórar herflugvélar og komst síðast í fréttir fyrr á þessu ári þegar bandarískar vélar flugu þaðan áleiðis til Íran. Í byrjun mars veitti Keir Starmer, þáverandi forsætisráðherra, bandaríska flughernum leyfi til að nýta herstöðina.