Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjársvik. Hann stundaði það um nokkurra mánaða skeið að borga minna fyrir matvæli en verðmerkingar þeirra sögðu til um.
Maðurinn var ákærður fyrir 42 brot í verslunum á fjögurra mánaða tímabili í fyrra. Í flest skiptin notaði hann strikamerki af vörum sem kostuðu 49 eða 79 krónur til að greiða fyrir dýrari vörur. Einu sinni notaði hann þó 45 króna strikamerki, öðru sinni 69 króna og tvisvar strikamerki af vöru sem kostaði 259 krónur.
Þetta notaði hann til að fá ýmis matvæli fyrir lítið. Meðal þess sem maðurinn keypti með þessum hætti var samlokuostur sem kostaði 1.509 krónur, gæðalágkolvetnabrauð á 679 krónur og Ali Rodizio-kjúklingur á 3.159 krónur.
Ein verslanakeðjan krafðist þess að fá greiddan mismuninn á verði varanna sem maðurinn keypti og upphæðarinnar sem hann greiddi. Krafan hljóðaði upp á 61.202 krónur og var maðurinn búinn að greiða búðinni upphæðina áður en dómur var kveðinn upp í morgun.