Sjö sakaðir um að nauðga sam­nemanda klukku­stundum saman - Vísir

Sjö sakaðir um að nauðga sam­nemanda klukku­stundum saman - Vísir

Sjö sakaðir um að nauðga sam­nemanda klukku­stundum saman - Vísir

Konan heldur því fram að henni hafi verið byrlað og hópnauðgað í margar klukkustundir og að háskólinn hafi brugðist skyldu sinni til að vernda hana eða refsa þeim sem báru ábyrgð. Konan sem hefur höfðað einkamál er fyrrverandi nemandi við Cornell. Í frétt ABC segir að í stefnu einkamálsins komi fram að henni hafi verið byrlað, hún beitt kynferðislegu ofbeldi og hópnauðgað af sjö meðlimum Chi Phi-bræðrafélagsins við Cornell.

Nýjar upplýsingar varði öðru ljósi á málið

Í frétt ABC er haft eftir Matthew Van Houten, héraðssaksóknara í Tompkins-sýslu, að embætti hans væri að íhuga hvort ákæra ætti vegna málsins. Hann sagði ásakanirnar í einkamálinu „verulega frábrugðnar“ frásögn konunnar til lögreglu háskólans tveimur árum áður.

„Ætlunin er að leggja málið fyrir kviðdóm í Tompkins-sýslu með samstarfi Jane Doe,“ sagði Van Houten við ABC News. „Við viljum endurskoða hvort frekari gögn, sem við höfðum ekki aðgang að í nóvember 2024 en liggja nú fyrir, gætu breytt mati okkar á málinu og leitt til þess að kviðdómurinn komist að þeirri niðurstöðu að um refsivert athæfi hafi verið að ræða.“

Bræðralaginu Chi Phi var eftir atvikið meinaður aðgangur að háskólasvæðinu en enginn þeirra sem sakaðir eru um að koma að málinu var ákærður á þeim tíma sem málið kom upp. Van Houten sagði að embætti hans hefði ekki ákært árið 2024 vegna þess að konan hefði í frásögn sinni til yfirvalda ekki sagt að henni hefði verið byrlað eða að hún hefði ekki samþykkt að stunda kynlíf.

„Hún sagði aldrei að henni hefði verið byrlað án vitundar sinnar. Hún viðurkenndi að hafa neytt fíkniefna og áfengis af fúsum og frjálsum vilja og með fullri vitund. Hún hélt því ekki fram að hún hefði verið neydd til að gera neitt. Hún sagði ekki að hún hefði verið líkamlega ófær um að bregðast við, meðvitundarlaus eða ófær um að verja sig á meðan hún var í húsi bræðrafélagsins,“ sagði Van Houten.

Lögregla hafi ekki haft samband

Í frétt ABC mótmælti lögmaður konunnar, Thomas P. Giuffra, lýsingu Van Houten á fyrstu frásögn konunnar til lögreglu Cornell-háskóla og gagnrýndi lögreglu fyrir að hafa ekki haft frekara samband við hana.

„Mín reynsla er sú að þegar rætt er við þolanda ofbeldis þarf nærgætni, skilning og sérhæfða þjálfun. Venjulegur háskólalögreglumaður býr ekki yfir þeirri færni. Það ætti að vera hlutverk sérþjálfaðs rannsóknarlögreglumanns eða héraðssaksóknara. Hins vegar hafði enginn með slíka færni samband við fröken Doe,“ sagði hann en konan er kölluð Jane Doe í öllum skjölum. 

Í viðtali við ABC News viðurkenndi Van Houten að hann hefði reitt sig á rannsókn Cornell-lögreglunnar og sagði að embætti hans hefði ekki „rannsakað ásakanirnar sjálfstætt“. Hann sagði þá framkvæmd vera í samræmi við framkvæmd í öðrum sýslum. 

Van Houten sagði einnig að hópspjall sem fylgdi stefnunni í einkamálinu, þar sem Jane Doe heldur því fram að meðlimir bræðrafélagsins hafi talað um nauðgunina, hefði aldrei verið afhent embætti hans. Giuffra sagði skilaboðin vera „lykilgagn“ sem hefðu verið afhent yfirvöldum árið 2024.

„Skjólstæðingur minn leitaði til lögreglu Cornell-háskóla vegna þess að glæpur hafði verið framinn. Það var skylda lögreglunnar að rannsaka kvörtunina. Þeim var afhent hópspjall þar sem meðlimir bræðrafélagsins voru hvattir til að nauðga skjólstæðingi mínum. Þetta var lykilgagn sem studdi að glæpur hefði verið framinn. Þrátt fyrir það höfðu hvorki Cornell-lögreglan né héraðssaksóknari Tompkins-sýslu frekara samband við fröken Doe,“ sagði hann.

Hvattir til að koma

Fjallað er nokkuð ítarlega um málið á vef Independent og stefnuna sem þau hafa undir höndum. Í frétt þeirra segir að stefnan sé 101 blaðsíða. Þar komi til dæmis fram að konan hafi verið tvítug þegar atvikið átti sér stað og meðlimur í kvenfélagi við háskólann. Í stefnunni segir að hún hafi verið í heimsókn hjá vini í húsinu og verið ölvuð þegar tveir karlkyns nemendur þrýstu á hana að draga að sér efni sem þeir sögðu vera ketamín.

Samkvæmt stefnunni sendi einn mannanna, á meðan árásinni stóð, skilaboð á virkt Snapchat-hópspjall bræðrafélagsins þar sem stóð „frí p****“ og þar sem fleiri meðlimir voru hvattir til að koma upp. Nokkrir karlkyns nemendur komu síðar á staðinn og samkvæmt stefnunni beittu sjö þeirra konuna kynferðislegu ofbeldi í margar klukkustundir.

Meðan á samskiptunum í Snapchat-spjallinu stóð er einum hinna ákærðu gefið að sök að hafa fagnað atvikinu með skilaboðum þar sem hann skrifaði: „Ég elska Chi Phi.“

Í stefnunni er lýst grófu ofbeldi, þar á meðal að menn hafi sogið ketamínlínur af líkama hennar, flutt hana á milli herbergja og haldið áfram að nauðga henni og beita hana kynferðislegu ofbeldi á meðan hún var ófær um að bregðast við. Að lokum hafi hún misst meðvitund um klukkan 5.45 að morgni.

Skrifuðu ritgerðir og gerðu aukaverkefni

Mennirnir sjö eru nafngreindir í skjölunum auk þess sem aðrir einstaklingar eru nafngreindir tengdir háskólanum sem eru sakaðir um vanrækslu og að hafa ekki verndað konuna nægilega.

Konan tilkynnti lögreglu Cornell-háskóla um atvikið um þremur vikum síðar, 8. nóvember 2024. Samkvæmt frétt Independent fór þá fram rannsókn innan skólans. Af þeim sjö karlkyns nemendum sem nefndir eru í einkamálinu voru aðeins tveir reknir úr Cornell. Hinir fengu vægari stjórnsýsluviðurlög, svo sem tímabundna brottvísun, skyldunámskeið eða ritgerðarverkefni.

Í frétt Independent segir að fjöldi hafi í kjölfar frétta um einkamálið gagnrýnt meðferð háskólans á málum um kynferðisbrot, einkum í ljósi fyrri afskipta lögreglu af fíkniefnatengdum atvikum sem tilkynnt var um í bræðrafélagshúsinu stuttu fyrir nauðgunina.

Málið hefur vakið nokkra athygli og hefur leikkonan Florence Pugh tjáð sig um það.

Hætti í skólanum

Konan hætti í háskólanum eftir atvikið og krefst ótilgreindra skaðabóta og refsibóta. Hún sakar hina stefndu meðal annars um samningsbrot, vanrækslu, vanrækslu við eftirlit, ábyrgð vegna aðstæðna á vettvangi og brot á lögum New York-ríkis.

Háskólinn sagði í yfirlýsingu í síðustu viku að þar væru ásakanir um kynferðislegt ofbeldi teknar „afar alvarlega“ og að skrifstofa borgaralegra réttinda og skrifstofa nemendareglna og samfélagsstaðla hefðu „rannsakað og úrskurðað í málinu í samræmi við reglur háskólans“.

Háskólinn sagði að alríkislöggjöf um persónuvernd kæmi í veg fyrir að hann gæti upplýst opinberlega um einstaka nemendur eða agaviðurlög. Cornell sagði að brot á reglum háskólans gætu leitt til viðurlaga, allt að tímabundinni brottvísun eða brottrekstri. Cornell sagði jafnframt að Xi-deild Chi Phi „væri enn útilokuð frá háskólasvæðinu“.

Sendi skilaboðin

Rætt er við lögmenn tveggja þeirra manna sem sakaðir eru um að hafa nauðgað konunni í frétt ABC. Annar neitar ásökununum og ofbeldinu og hinn þvertekur fyrir að hafa nauðgað konunni eða neytt vímuefna en viðurkennir að hafa sent skilaboðin sem fjallað er um í skjölum stefnunnar.

„Ég tók ekki þátt í kynferðislegum athöfnum eða fíkniefnaneyslu. Cornell komst ekki að þeirri niðurstöðu að ég bæri ábyrgð á neinum þeirra ásakana um kynferðislegt athæfi og fíkniefnaneyslu sem aðrir hlutu alvarlegar afleiðingar vegna. Ég hagaði mér hugsunarlaust á Snapchat og kom stuttlega inn í herbergið þar sem óviðeigandi háttsemi átti sér stað, en ekki á meðan hún átti sér stað,“ er haft eftir honum. 

#klukkustundum #nauðga #sakaðir #samnemanda #sjö


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940614d/sjo-sakadir-um-ad-naudga-samnemanda-klukkustundum-saman

📰 Aðrar fréttir

Valkvæð einkamál Samfylkingar og þögn Kristrúnar
📅 28.09.2026 👁️ 0
Valkvæð einkamál Samfylkingar og þögn Kristrúnar
Valkvæð einkamál Samfylkingar og þögn Kristrúnar Fréttin28. september 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Arna Lára Jónsdóttir og Guðmundur Ing...
Ragnar þurfti krabbamein til að vakna: „Ég er búinn að hlaupa í hringi í 50 ár“
📅 28.09.2026 👁️ 0
Ragnar þurfti krabbamein til að vakna: „Ég er búinn að hlaupa í hringi í 50 ár“
Ragnar Agnarsson segir að krabbamein sem hann fékk hafi kennt honum að lifa upp á nýtt og sé það besta sem hafi komið fyrir hann.Ragnar, sem var um ár...
Um 20 sagt upp hjá Arion banka
📅 28.09.2026 👁️ 0
Um 20 sagt upp hjá Arion banka
Um það bil 20 starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Arion banka. Flestar uppsagnirnar taka gildi nú þegar. Þetta staðfestir Haraldur Guði Eiðsson, for...
Harðari tónn en áður hafi verið sleginn - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Harðari tónn en áður hafi verið sleginn - Vísir
Í ræðunni sagði Þorgerður siðferðislega hugleysingja vera þá sem neita að semja um frið, komi í veg fyrir að mannúðaraðstoð berist til þeirra sem þurf...
Svindlaði í búðum með því að nota vitlausa strikamiða
📅 28.09.2026 👁️ 0
Svindlaði í búðum með því að nota vitlausa strikamiða
Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjársvik. Hann stundaði það um nokkurra mánaða skeið ...
Upp­sagnir, undar­leg taktík og um­töluð ræða - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Upp­sagnir, undar­leg taktík og um­töluð ræða - Vísir
Í hádegisfréttum verður rætt við Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnamálafræðing sem segir ekki um breytingu að ræða í utanríkisstefnu Íslands se...
Watch: Were the RAF Fairford arrests 'pure luck'?
📅 28.09.2026 👁️ 0
Watch: Were the RAF Fairford arrests 'pure luck'?
Five men have been arrested on suspicion of explosive and terrorism offences after a major incident was declared at an airbase in the west of England.
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys
📅 28.09.2026 👁️ 0
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys Lög­regl­an hef­ur rætt við um tíu vitni sem voru á vett­vangi þeg­ar bana­slys átti sér stað á Krý...
Spurði Xi hvort hann vildi kaupa banda­rísk vopn - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 0
Spurði Xi hvort hann vildi kaupa banda­rísk vopn - Vísir
Trump vildi með þessu meina að Bandaríkjamenn seldu vopn víða um heim og salan til Taívan væri ekki einstök. Xi og aðrir ráðamenn í Kína hafa reynt að...
Lithium-ion battery fire killed Bootle mum and three children
📅 28.09.2026 👁️ 0
Lithium-ion battery fire killed Bootle mum and three children
Elisha Brabin, 36, and three of her children, died after a blaze at their home in Bootle, Merseyside.
Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 1
Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum - Vísir
Alaska hefur alla tíð haft mikla ástríðu fyrir tónlist og hefur listformið verið henni haldreypi í gegnum erfiða tíma. Hún gaf út fyrsta lagið sitt, H...
Hanna Katrín segir Guðrúnu geta látið sig dreyma: „Þetta er töluverð óskhyggja hjá henni“
📅 28.09.2026 👁️ 1
Hanna Katrín segir Guðrúnu geta látið sig dreyma: „Þetta er töluverð óskhyggja hjá henni“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að umræðan í kringum brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherrastóli ekki hafa nein áhrif ...
Bónus og Hagkaup lækka verð á um 1.000 vörum
📅 28.09.2026 👁️ 1
Bónus og Hagkaup lækka verð á um 1.000 vörum
Hagar hafa í dag lækkað verð á hátt í 1.000 vörum í Bónus og Hagkaup um 2% og gildir lækkunin til áramóta.Í tilkynningu kemur fram að um sé að ræða st...
Mansal á Íslandi: Segir karla af erlendum uppruna neyða konur til að verða ófrískar
📅 28.09.2026 👁️ 1
Mansal á Íslandi: Segir karla af erlendum uppruna neyða konur til að verða ófrískar
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir íslenskt réttarvörslukerfi standa frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals, sem er skuggama...
Mikil ólga í Hafnarfirði vegna 260 íbúða: „Samkomulagið vekur fleiri spurningar en það svarar“
📅 28.09.2026 👁️ 1
Mikil ólga í Hafnarfirði vegna 260 íbúða: „Samkomulagið vekur fleiri spurningar en það svarar“
Deilur um fyrirhugaða uppbyggingu 260 íbúða fyrir tímabundna búsetu á Völlunum í Hafnarfirði halda áfram að magnast.Einar Geir Þorsteinsson, fulltrúi ...
Ekið á fimm ára barn á hjóli - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 1
Ekið á fimm ára barn á hjóli - Vísir
Atvikið átti sér stað í Hveragerði og var barnið á hjóli þegar ekið var á það. Þetta staðfestir vakthafandi lögreglufulltrúi á Suðurlandi í samtali vi...
„Eins og þegar ein­angrunar­plasti er strokið eftir gler­rúðu“ - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 1
„Eins og þegar ein­angrunar­plasti er strokið eftir gler­rúðu“ - Vísir
Björn var í útvarpsviðtali vegna nýrrar bókar sinnar „Ókunnugt fólk“. Þar varð honum á að segja „þeim langar“, sem flokkast undir þágufallssýki og tví...
Sá grímuklædda menn nærri herflugvellinum og hringdi í neyðarlínuna
📅 28.09.2026 👁️ 0
Sá grímuklædda menn nærri herflugvellinum og hringdi í neyðarlínuna
Bóndi sem hringdi á neyðarlínuna í Bretlandi segist hafa séð hóp grímu- og hettuklæddra manna nálægt Fairford-flugvelli breska hersins þegar hún var á...
Krabba­meinið það besta sem hafi komið fyrir hann - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 1
Krabba­meinið það besta sem hafi komið fyrir hann - Vísir
„Þessi karakter sem ég var og þetta leikrit sem ég var í hentaði mér á þeim tíma. En síðan kemur tímapunktur þar sem þetta hættir að meika sens og þá ...
Flugvirkjar funda með Icelandair hjá ríkissáttasemjara
📅 28.09.2026 👁️ 2
Flugvirkjar funda með Icelandair hjá ríkissáttasemjara
Samninganefndir Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair funda hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu. Fyrsti fundur samninganefndanna eftir verkfall flugvir...
Three dead, including child, in Channel crossing attempt
📅 28.09.2026 👁️ 2
Three dead, including child, in Channel crossing attempt
A 10-year-old child and two 30-year-old women were on board the boat - which was carrying 105 people.
Vikan á Instagram: „Maður getur látið sér dreyma“
📅 28.09.2026 👁️ 2
Vikan á Instagram: „Maður getur látið sér dreyma“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Lækka verð á nær þúsund vörum
📅 28.09.2026 👁️ 2
Lækka verð á nær þúsund vörum
Stjórnendur Haga hafa ákveðið að lækka verð á hátt í þúsund vörum um tvö prósent til áramóta. Þetta eru vörur sem Bónus og Hagkaup hafa til sölu í ver...
Vilja form­lega af­sökun frá Selenskí - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Vilja form­lega af­sökun frá Selenskí - Vísir
Úkraínumenn hafna því að samið hafi verið um að ekki yrði sagt frá því hvar hermennirnir enduðu. Í kjölfarið gaf Seoung Ghi-hong, ráðgjafi Lee, út yfi...
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
📅 28.09.2026 👁️ 2
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu
Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu Laugaból 2 Fallegt og rúmgott einbýlishús á rúmlega 5.000 fermetra eignarlóð við Reykjahlíða...
Svipta Magyar og tvo aðra þinghelgi
📅 28.09.2026 👁️ 2
Svipta Magyar og tvo aðra þinghelgi
Ungverska þingið samþykkti í dag að svipta þrjá menn þinghelgi vegna rannsókna á því hvort þeir hefðu framið lögbrot.Tveir mannanna voru ráðherrar í v...
Dorrit þvoði hárið í ís­lenskri náttúru - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Dorrit þvoði hárið í ís­lenskri náttúru - Vísir
Sámur, hundurinn hennar, var ekki hrifinn af sólinni og beið þolinmóður eftir að hún væri búin að baða sig. Það fór vel um hann í skugga á bak við ste...
UK diesel price hits all-time high, RAC says
📅 28.09.2026 👁️ 2
UK diesel price hits all-time high, RAC says
The US-Israel war with Iran has caused fuel prices to soar.
Bodhana Sivanandan: British schoolgirl becomes youngest woman grandmaster
📅 28.09.2026 👁️ 2
Bodhana Sivanandan: British schoolgirl becomes youngest woman grandmaster
The 11-year-old has broken another chess record after a remarkable performance representing England.
Trump vill fleiri bensín­háka á göturnar - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Trump vill fleiri bensín­háka á göturnar - Vísir
Með breytingunum á kröfum um sparneytni er áætlað að meðaleldsneytiseyðsla fólksbíla og jeppa verði um 6,8 lítrar á hundrað kílómetra (34,5 mílur á ga...
Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir - Vísir
Þetta segir Narfi Hjartarson, skógarvörður Þjóðskóganna á Vesturlandi, í samtali við Bítið í morgun. Hann birti á dögunum færslu á Facebook-hópnum Fun...
Einn merkasti sögustaður landsins á krossgötum
📅 28.09.2026 👁️ 2
Einn merkasti sögustaður landsins á krossgötum
Landbúnaðarháskólinn á Hólum hefur frá og með þessu hausti verið sameinaður Háskóla Íslands og ákveðin óvissa ríkir um starfsemina á Hólum enda er hlu...
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð
📅 28.09.2026 👁️ 2
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð Magda­lena And­ers­son, leið­togi sænskra jafn­að­ar­manna, seg­ir við­ræð­ur við hina þrjá flokk­...
„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“ - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“ - Vísir
Greint var frá því fyrir helgi að yfir 2500 börn hafa beðið í meira en þrjá mánuði eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Nýjustu tölur umboðsman...
Jay Slater’s mother returns to Tenerife ahead of new documentary about his death
📅 28.09.2026 👁️ 2
Jay Slater’s mother returns to Tenerife ahead of new documentary about his death
The mother of British teenager Jay Slater has returned to Tenerife to retrace her son's final journey and seek answers about the circumstances surroun...
Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
📅 28.09.2026 👁️ 1
Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja
Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja Bogi Nils BogasonEr forstjóri Icelandair Mynd: Aðsend Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Icelandair af rúmlega 1...
Upplausnarástand ef ekki næst saman
📅 28.09.2026 👁️ 2
Upplausnarástand ef ekki næst saman
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, segir að það séu helst stjórnvöld og sveitarfélög sem ekki hafi staðið vaktina í baráttunni ...
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna
📅 28.09.2026 👁️ 2
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna
Guðrún fyrirgaf framhjáhald Árna Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir Mynd: Golli Hjónin Árni Björn Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdót...
Angela Scanlon to take over Sara Cox's drivetime slot on Radio 2
📅 28.09.2026 👁️ 2
Angela Scanlon to take over Sara Cox's drivetime slot on Radio 2
The station also announces a new presenter for its country show after Bob Harris's departure.
Segist hafa gefist upp á stjórnar­myndun í Sví­þjóð - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Segist hafa gefist upp á stjórnar­myndun í Sví­þjóð - Vísir
Í umfjöllun sænska ríkisútvarpsins kemur fram að Andersson hafi boðað til blaðamannafundar vegna málsins í morgun. Hún segir viðræður við vinstriflokk...
Er í lagi að verslanir láti hvatvísa, tækniblinda eða greindarskerta borga meira?
📅 28.09.2026 👁️ 2
Er í lagi að verslanir láti hvatvísa, tækniblinda eða greindarskerta borga meira?
Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, hefur á sínum ferli rannsakað hegðun fólks í verslunum og hefur yfirgripsmikl...
Breytingar í veðrinu á morgun: „Búist við mikilli rigningu“
📅 28.09.2026 👁️ 2
Breytingar í veðrinu á morgun: „Búist við mikilli rigningu“
Búast má við því að veður í dag verði með svipuðu móti og það var um helgina, norðan strekkingur og vætusamt á Vestfjörðum en annars mun hægari vindur...
Guðmundur verndari
📅 28.09.2026 👁️ 2
Guðmundur verndari
Guðmundur verndari Guðmundur Ari Sigurjónsson Mynd: Víkingur Ljóst er að margir þingmenn og landsmenn séu ennþá að klóra sér í hausnum vegna ræðu Guðm...
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn
📅 28.09.2026 👁️ 2
Andersson tókst ekki að mynda ríkisstjórn
Ekki er möguleiki á að mynda ríkisstjórn, segir Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð. Hún segir að Vinstriflokkurinn hafi tilkynnt sé...
Far­þegi hand­tekinn í Hollandi vegna skemmdarverka - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Far­þegi hand­tekinn í Hollandi vegna skemmdarverka - Vísir
Haft er eftir Ásdísi Ýr Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa Icelandair, í frétt RÚV að samkvæmt verklagi hafi verið haft samband við lögregluna. Hún vild...
Danski leik­stjórinn setti vini sínum afar­kosti - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Danski leik­stjórinn setti vini sínum afar­kosti - Vísir
Fjallað er um áfengisfíkn leikarans í nýjum sjónvarpsþætti í danska ríkisútvarpinu, en tekið fram að leikarinn hafi nú verið edrú í tólf ár. Þar er ræ...
Olíuverð hækkar enn á ný
📅 28.09.2026 👁️ 2
Olíuverð hækkar enn á ný
Olíuverð hækkaði í dag og fór í 107 dollara á fatið. Þar með gengur til baka lækkun föstudagsins, hún var vegna þess að Íranar greindu frá því að þeir...
Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni - Vísir
Swift tileinkaði hinni látnu Dolly Parton verðlaunin og kallaði hana „hina fullkomnu showgirl“. Swift hlaut einnig ný verðlaun sem voru veitt í fyrsta...
Wildfire alert lifted in Gran Canaria after three fires in four days
📅 28.09.2026 👁️ 2
Wildfire alert lifted in Gran Canaria after three fires in four days
Gran Canaria's wildfire alert has been lifted this morning (Monday) after firefighters dealt with three separate outbreaks across the island over the ...
Skil næstu lægðar nálgast - Vísir
📅 28.09.2026 👁️ 2
Skil næstu lægðar nálgast - Vísir
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að með lægðaskilunum muni fylgja rigning og að á eftir hádegi á morgun ger...