Hafnarfjarðarbær greiddi frístundastyrk mánaðarlega til foreldra. Sumir foreldrar gátu ekki fullnýtt styrkinn því aðeins var greitt fyrir þá mánuði sem barnið iðkaði frístundina. Frá og með 1. janúar 2026 er allri upphæðinni úthlutað einu sinni á ári. Flestar skráningar í íþróttir eru á haustmánuðum.
Þeir sem fengu mánaðarlegar greiðslur frá 1. janúar 2026 fram til haustsins eru, samkvæmt bænum, búnir að nota stóran hluta styrksins árið 2026 og eiga því aðeins brot inni þegar skráning haustsins hefst. Guðni Vilberg Björnsson fer fyrir hópi vonsvikinna foreldra sem vill meina að þetta sé skerðing á styrknum upp á allt að 38.000 krónur á hvert barn.
„Þetta var ekkert kynnt. Það kom bara ein klásúla í grein frá bænum að það væri verið að breyta kerfinu og það yrðu kannski bara smá tæknileg vandamál í byrjun. Tæknilega vandamálið var svo bara að fólk fékk bara 40% af því sem það átti að fá,“ segir Guðni Vilberg Björnsson.
Fjölgar jafnt og þétt á undirskriftalistanum
Ríflega 300 undirskriftir eru komnar á listann sem Guðni fer fyrir. Eitthvað hefur borið á því að foreldrar veigri sér við að skrá börnin í íþróttir í haust sökum óvissunnar sem er uppi. Þetta staðfestir íþróttastjóri Hauka, Aron Rafn Eðvarðsson. Málið verður tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði á morgun. Að sögn Guðna er nýjasta útspil bæjarins að bjóða upp á að fólk geti nýtt hluta af styrknum fyrir árið 2027 í haust.
Kristín María Thoroddsen, formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar, segir aðspurð hvort þau séu að fresta vandamálinu fram á næsta ár, að foreldrarnir ráði því hvort þau noti styrkinn eða ekki. „Að hluta til má segja það. Munurinn er hins vegar sá að þeir foreldrar sem kjósa að nýta þessa leið vita fyrir fram nákvæmlega hvað það þýðir fyrir styrkinn þeirra árið 2027. Þetta er tímabundin leið til að auðvelda foreldrum þessi umskipti. Foreldrar geta valið hvort þeir nýta hana eða geyma allan styrk ársins 2027 til næsta árs.“
Í skriflegu svari hennar til RÚV segir einnig að það megi gagnrýna hvernig þetta hafi verið kynnt fyrir foreldrum. Þetta hafi þó birst á heimasíðu bæjarins í upphafi árs og hafi verið kynnt fyrir íþróttafélögunum á sama tíma. Breytingin sé til þess gerð að styrkurinn nýtist foreldrum betur.
Ríflega 500 foreldrar eru komnir í Facebook-hóp sem að Guðni bjó til þar sem hann hvetur fólk til þess að setja sig í samband við bæinn og ýta á skýr svör:
„Ef þeir hefðu tilkynnt þetta í janúar í fyrra, heldur þú að þeir hefðu fengið góða kosningu í sveitarstjórnarkosningunum í vor?“