Úkraínuher hefur frá miðjum júlí gert yfir tuttugu árásir á vöruhús og byggingar Wildberries-netverslunarinnar í Rússlandi. Árásirnar hafa markað ákveðin þáttaskil í átökunum milli Rússa og Úkraínumanna og hin sértæka hernaðaraðgerð Rússa, líkt og innrásin kallast í Rússlandi, er allt í einu komin mikið nær hinum almenna borgara í Rússlandi.
Rússneska netverslunin Wildberries var líklega fæstum Íslendingum kunn áður en fréttir bárust af árásum Úkraínumanna á netverslunina. Wildberries er gjarnan lýst sem rússneska Amazon, netverslun sem selur ýmsan varning til viðskiptavina sinna í Rússlandi, Armeníu, Belarús, Georgíu, Kasakstan, Kyrgystan, Tajikistan og Úsbekistan.
Wildberries er ein vinsælasta verslun Rússlands og um 79 milljónir manna – eða um helmingur íbúa landsins, versla við fyrirtækið í hverjum mánuði. Viðskiptavinir geta valið um að fá vörurnar sendar í hraðpósti heim til sín, sækja vörurnar beint í verslun seljanda eða sækja vörurnar á einhverjar þeirra 90.000 afhendingarstöðva fyrirtækisins í viðskiptalöndum þess. Hér má sjá kort af afhendingarstöðum Wildberries á heimasíðu fyrirtækisins.
Wildberries í stórborgum jafnt sem útnárum Rússlands
Fá fyrirtæki standast samanburð hvað varðar vöruúrval, þjónustu og dreifingu. Þjónusta fyrirtækisins nær til margra af afskekktustu byggðum Rússlands þar sem verslun og þjónusta er oft afar takmörkuð. Þannig geta kolanámuverkamenn í Bartensburg á Svalbarða, jafnt sem kavíarvinnslufólk á Kúrileyjum, pantað sér vörur frá Wildberries og sótt þær í sínum heimabæjum.
Á síðasta ári gátu svo íbúar í Khorog í Tadsjikistan farið að panta sér vörur, en þar ku vera sá afhendingarstaður Wildberries sem er í mestri hæð yfir sjávarmáli eða í 2.500 metra hæð. Á afskekktum stöðum sem þessum getur afhendingarstöð Wildberries orðið jafnmikilvæg og pósthúsið og kaupmaðurinn á horninu.
Yfir tuttugu árásir á Wildberries vítt og breitt um Rússland og Krím
Síðan um miðjan júlí hafa verið gerðar yfir 20 árásir á vöruhús og dreifingarstöðvar fyrirtækisins á nokkrum stöðum í Rússlandi og á hernumdum Krímskaga. Árásirnar hafa verið misumfangsmiklar og tilkynnt hefur verið um mannfall í nokkrum þeirra.
Fyrsta árásin á vöruhús Wildberries var gerð 18. júlí í Tambov um 475 km frá Moskvu. Sama dag var önnur árás gerð á vöruhús í Elektrostal í Moskvuhéraði. Átta voru drepnir í þessum árásum og yfir 90 særðust. Mikill eldur braust út í árásinni í Elektrostal, sem tók þrjá daga að slökkva.
Volodmyr Zelensky Úkraínuforseti sagði að árásirnar hefðu verið gerðar á stóra dreifingarstöð sem hefði verið nýtt af Rússum til að útvega íhluti fyrir drónaframleiðslu og leiðsögutæki sem væru undir viðskiptaþvingunum. Síðar var greint frá því að hægt sé að versla skotheld vesti og ljósleiðarakapla fyrir dróna í netversluninni.
Og árásunum átti eftir að fjölga. Úkraínumenn hafa síðan gert að minnsta kosti 20 árásir á vöruhús Wildberries vítt og breitt um Rússland og á hernumdum Krímskaga. Árásir hafa verið gerðar á vöruhús fyrirtækisins í Krasnodar, Nevinnomyssk, Pétursborg, Simferopol á Krímskaga, Sarapul, Volgograd, Yekaterinburg og í héruðunum Vladimir, Penza, Tver og Voronezh.
Þetta er ekki tæmandi upptalning og það er nokkuð ljóst að árásirnar 18. júlí voru ekki tilfallandi.
Þetta er auglýsing frá Wildberries frá síðasta ári og Kim birtist þarna til að auglýsa fyrirtækið. Þarna segir að þetta hafi allt byrjað með einni ósk, ósk um að allir hefðu val. Það er eigandi fyrirtækisins og stofnandi þess, Tatyana Kim, sem birtist sjálf í upphafi auglýsingarinnar og vísar í það hvernig fyrirtækið varð til og hvað varð kveikjan að stofnun þess, það er að segja að hafa val. Og Kim þekkir það af eigin raun að búa við þær aðstæður að hafa ekki val.
Öskubuskuævintýri enskukennara
Tatyana Vladimirovna Kim – einnig þekkt sem Tatyana Vladimirovna Bakalchuk er rétt rúmlega fimmtug og þekkir tímana tvenna, það er Sovétríkin og Rússland í dag. Hún er af kóreskum uppruna og fæddist í Sovétríkjunum, í Grosní í Téténíu 16. október 1975. Hún og fjölskylda hennar tilheyra Koryo-Saram, sem er fólk ættað frá Kóreu en flúði til austasta hluta Rússlands á síðari hluta 19. aldar og fram á þá tuttugustu.
Koryo-Saram hófu nýtt líf í Rússlandi og samfélag þeirra óx og dafnaði þar allt til 1937 þegar Jósep Stalín hóf nauðungaflutninga á um 170.000 Koryo-Saram einkum til Kasakstan og Úsbekistan. Ekki lifðu allir þá þrekraun af en með tíð og tíma náði fólkið að skjóta rótum á ný í framandi aðstæðum og löndum og koma undir sig fótunum að nýju og aðlagast samfélaginu.
En aftur að Kim. Hún fluttist ung til Moskvu-héraðs með foreldrum sínum og ólst þar upp. Hún er menntaður enskukennari og vann sem slíkur fyrst eftir að hún flutti til Moskvuborgar. Hún kynntist eiginmanni sínum, upplýsingatæknifræðingnum Vladislav Bakalchuk, upp úr aldamótunum og eignaðist með honum alls sjö börn.
Hlaðvarpsþátturinn Good Bad billionaire hjá breska ríkisútvarpinu rýndi í feril Kim og uppbyggingu fyrirtækisins.
Í umfjöllun þáttarins kemur fram að sagan segi að Kim hafi verið í fæðingarorlofi með sitt fyrsta barn og í einhvers konar krísu, með fæðingarþunglyndi og fannst erfitt að snúa aftur í kennsluna. Hún fór að leiða hugann að öðrum starfsmöguleikum og hvernig hún gæti samræmt starf sitt betur við fjölskyldulífið.
Henni varð hugsað til þess hvað hana vantaði og vandræðanna við að kaupa sér föt og upp frá því kviknaði hugmyndin um að selja föt á netinu. Þar með var hugmyndin að Wildberries komin. Þau hjónin stofnuðu fyrirtækið árið 2004 og fyrst um sinn seldi hún föt úr þýskum pöntunarlistum líkt og Ottó og Quelle úr íbúðinni þeirra í Moskvu.
Kim hefur sagt að hún hafi sjálf séð um dreifingu á vörunum og nýtt sér almenningssamgöngur í Moskvuborg til að færa kaupendum vörur. Smám saman jókst umfang fyrirtækisins, hjónin létu hanna vefsíðu fyrir fyrirtækið og fjölskyldumeðlimir tóku að sér hin ýmsu störf innan þess.
Og þetta fór vel af stað. Árið 2009 náði Wildberries samningi við Adidas sem jók enn frekar sölu fyrirtækisins. Fyrirtækið hóf síðan að bjóða upp á þjónustu- og mátunarklefa á afhendingarstöðvum sínum, sem gerði viðskiptavinum kleift að panta vörurnar, máta þær og skila strax ef varan var þeim ekki að skapi.
Málaferli og ný ímynd
Þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og fall rússnesku rúblunnar í kjölfar innlimunar Rússa á Krímskaga árið 2014, hélt fyrirtækið áfram að vaxa. Þá gátu viðskiptavinir byrjað að selja vörur sínar í netverslun Wildberries og fyrirtækið var þá farið að selja fleiri vörur en tískufatnað. Árið 2016 var fyrirtækið orðið vinsælasta netverslun Rússlands en svo fór að smám saman að halla undan fæti. Ári síðar fóru samstarfsaðilar og birgjar í málaferli við Wildberries vegna tafa á greiðslum og breytinga á greiðsluskilmálum.
Wildberries vann þessi málaferli en engu að síður skaðaði þetta orðspor fyrirtækisins og þá var almannatengill fenginn til liðs við fyrirtækið til að breyta ímynd fyrirtækisins út á við. Bakalchuk vildi ekki vera andlit fyrirtækisins og því kom það í hlut Kim. Þannig varð sagan eða ímyndin til af henni sem enskukennara sem stofnaði fyrirtækið heima hjá sér í fæðingarorlofi, konu sem aðeins klæddist fötum sem voru fáanleg hjá Wildberries og hafði lítinn áhuga á merkjavöru. Og þetta virkaði.
Sumir vilja meina að þetta sé nokkur einföldun og þáttur eiginmanns Bakalchuk hafi verið mun meiri í stofnun og rekstri fyrirtækisins. Árið 2019 var Tatyana sögð eini eigandi fyrirtækisins og sama ár komst hún komst fyrst á lista Forbes yfir milljarðamæringa árið 2019. En þó að salan væri góð og auðævin að hrannast upp þá voru blikur á lofti bæði í rekstri Wildberries og ekki hvað síst heima við hjá Bakalchuk-hjónunum.
Leiðin var ekki öll upp á við
Árið 2021 fór starfsfólk netverslunarinnar í verkfall vegna óánægju með laun og vinnufyrirkomulag. Yfirvöld komu í fleiri hundruð eftirlitsferðir í fyrirtækið og komu með ýmsar athugasemdir.
Það var svo í janúar 2024 sem eldur kviknaði í vöruhúsi fyrirtækisins í Pétursborg. Eldurinn náði að læsa sig í um 70.000 fermetra húsnæðisins og það tók slökkviliðsmenn 30 klukkustundir að slökkva eldinn. Tjónið var gríðarlegt og var metið á 191 milljón dollara. The Moscow Times greindi frá því nokkrum dögum síðar að yfirvöld hefðu gert húsleit á skrifstofu fyrirtækisins og að eldvarnarmál fyrirtækisins yrðu rannsökuð sérstaklega.
Fyrirtækið og Bakalchuk-hjónin voru undir miklum þrýstingi frá yfirvöldum og fljótlega upp frá því hófust – alls óvæntar – samrunaviðræður milli auglýsingafyrirtækisins Russ outdoor og Wildberries árið 2024.
Það sem þótti sérstakt við samrunann var að Russ outdoor var margfalt minna fyrirtæki en Wildberries og starfsemi þess hafði lítið með netverslun að gera enda voru áherslur Russ outdoor rekstur auglýsingaskilta í almannarými. Hvernig samrunann bar að og hverjir áttu frumkvæði að samrunaviðræðunum er í raun svolítið óljóst. Það hefur verið látið að því liggja að Wildberries hafi verið þvingað í einhvers konar samruna eða skjól yfirvalda til að geta haldið áfram rekstrinum eftir allt sem á undan var gengið.
Russ Outdoor lagði ekkert til samrunans, en hlutur Wildberries eftir samrunann var 65% í nýju fyrirtæki en hlutur Russ Outdoor var 35%. Milljarðamæringurinn, ólígarkinn og öldungadeildarþingmaðurinn Suleyman Kerimov er sagður hafa verið helsti hvatamaður að samrunanum. Hann er í innsta hring Vladimirs Pútín Rússlandsforseta og Rússlandsforseti er sagður hafa blessað þessi viðskipti. Á sama tíma var farið að hrikta í stoðum hjónabands Kim og Bakalchuk og sá skilnaður átti eftir að enda með ósköpum.
Bakalchuk var síður en svo sáttur við samruna Russ outdoor og Wildberries, þrátt fyrir að hafa aðeins átt eitt prósent í fyrirtækinu þegar þarna var komið við sögu, en Kim átti hin 99 prósentin. Bakalchuk fór til fundar við Ramzan Kadyrov, leiðtoga Tétsníu, og í myndbandi sem hann birti af fundi þeirra á Youtube biðlaði hann til Karyrovs um aðstoð því eiginkona hans hefði yfirgefið heimilið og væri í „slæmum félagsskap“ eins og hann orðaði það. Bakalchuk sagði samrunann vera yfirtöku.
Ekki sat á Kadyrov, sem sýndi mikla samúð með Bakalchuk og sagði að djöflar og illar vættir væru að rústa fjölskyldulífi þeirra og sjö barna þeirra og hét því að aðstoða við að ná Kim aftur til fjölskyldunnar og vernda fyrirtækið.
Kim átti sér einskins ills von 18. september sama ár þegar hún var á skrifstofum Wildberries í miðborg Moskvu og vopnaðir menn ruddust inn á skrifstofurnar. Til átaka kom með þeim afleiðingum að tveir öryggisverðir féllu í valinn og fimm særðust. En það var eitt andlit og fas öðrum kunnuglegra í hópi árásarmanna. Kim fannst hún þekkja eiginmann sinn Bakalchuk í hópi þessara vopnuðu manna og þegar árásarmennirnir voru á bak og burt birti hún skilaboð á Telegram þar sem hún ávarpaði eiginmann sinn í miklu uppnámi og spurði einfaldlega: „Vladislav, hvað ertu að gera?“
28 manns voru handteknir eftir árásina, þar á meðal menn með tengsl við Téténíu. Bakalchuk var síðar ákærður fyrir morð – en ákærurnar voru síðar látnar niður falla.
Samruni og ættarstríð
Samruni Russ outdoor og Wildberries var fullfrágenginn í október 2024 og fyrirtækið heitir nú RWB Group eða Wildberries & Russ / RWB. Forbes í Rússlandi metur virði Wildberries & Russ á 12,6 milljarða dollara.
Skilnaður Tatyönu og Vladislavs gekk svo í gegn um hálfu ári eftir árásina á skrifstofu Wildberries. Stuttu síðar dæmdi réttur í Moskvu Vladislav til að eftirláta fyrrum eiginkonu sinni eina prósenti hans í fyrirtækinu. Samruni Russ outdoor og Wildberries var því hádramatískur og hafa sumir getið sér til um að Bakalchuk-hjónin hafi verið taflmenn í stærra valdatafli milli Kerimovs og Kadyrovs.
Kadyrov lýsti yfir ættarstríði gegn Kerimov og tveimur öðrum þingmönnum og sakaði þá um að hafa skipulagt yfirtökuna á Wildberries frá Tatyönu og fyrirskipað aftöku á sér. The Moscow Times greindi svo frá því fyrr á þessu ári að Kadyrov og Kerimov hefðu grafið stríðsöxina og birti mynd af þeim félögum þar sem þeir brosa hringinn. Og það dugði ekkert minna til en sjálfan Vladimir Pútín Rússlandsforseta til að koma á sáttum þessara manna á milli.
Kim, sem losaði sig við eftirnafn fyrrverandi eiginmanns síns og tók upp eftirnafn sitt Kim að nýju – hefur síðan klifrað upp lista Forbes yfir efnuðustu einstaklinga í heimi. Hún er nú ríkasta kona Rússlands og ein fjögurra rússneskra kvenna sem eru milljarðamæringar. Forbes metur auðævi hennar á 8,1 milljarð dollara.
Nýtt vaxtaskeið Wildberries
Vöxtur Wildberries hefur líklega farið fram úr villtustu vonum Tatyönu Kim frá þeim tíma þegar hún gekk frá pöntunum til viðskiptavina í íbúð sinni í Moskvu og varla sá hún fyrir margar þær áskoranir og óvæntu uppákomur sem hún hefur þurft að takast á við í rekstri fyrirtækisins.
Eftir samrunann við Russ outdoor hófst enn annað vaxtaskeið Wildberries. Þegar viðskiptaþvinganir voru settar á fjölmörg fyrirtæki og einstaklinga í Rússlandi vegna innrásar Rússa í Úkraínu skapaðist enn meira rými fyrir vöxt netverslunarinnar. Fyrirtækið hefur verið sakað um að sneiða fram hjá viðskiptaþvingunum með innflutningi í gegnum þriðja land og bjóða upp á ýmsar vörur og varning sem ekki eru fáanlegar í Rússlandi.
Byggð voru vöruhús á yfir 2,3 milljón fermetrum og flest þeirra opnuðu í upphafi síðasta árs. Árleg velta fyrirtækisins er sögð 70-75 milljarðar evra sem talið er nema um 2% af vergri landsframleiðslu Rússlands (GDP). Um 50.000 vinna hjá Wildberries og á álagstímum fer sá fjöldi upp í allt að 100.000 manns, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Stjórnvöld í Póllandi hafa kallað fyrirtækið stærsta skattgreiðanda Rússlands.
Wildberries er mikið laskað eftir árásir síðustu mánaða. Úkraínski herinn segir sjö af tíu stærstu vöruhúsum Wildberries hafa orðið fyrir árásum. Netverslunarráðgjafafyrirtækið Data Insight í Moskvu, áætlar að Wildberries hafi tapað vörum að verðmæti 5,7 milljarða dollara og um þriðjungi vöruhúsa fyrirtækisins.
Samanlagt tap fyrirtækisins og seljenda þess gæti verið allt að 9,5 milljarðar dollara. Um ein milljón seljenda selja vörur sínar í netversluninni. Margir þeirra eru með lítil og meðalstór fyrirtæki sem reiða sig á tekjur af netverslun, þar sem helstu viðskipti þeirra fara fram um síðuna. Talið er að allt að 400.000 þeirra hafi orðið fyrir áhrifum árásanna með einhverjum hætti og þessir seljendur sitja uppi með mismikið tjón sem getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir rekstur þeirra og tekjur. Tjón af völdum árása verður þó ekki bætt öllum. Sumir seljendur segja að þeir hafi undirritað samning þess efnis í byrjun júlí að tjón af völdum drónaárása á vöruhúsi verði ekki bætt.
Kim sagði þó nýverið að fyrirtækið hefði greitt samanlagt um 500.000 dollara inn á reikninga um 88.000 seljenda til að bæta þeim tjón.
Enginn vafi leikur á að mannfall varð í árásunum og fjöldi fólks slasaðist í þeim. Wildberries segir að búið sé að greiða bætur fyrir meira en 500.000 dollara til fjölskyldna starfsmanna sem hafa verið drepnir eða særst í árásum.
Kim hefur fordæmt árásir Úkraínuhers og kallar þær hryðjuverk. Í myndskeiði sem hún birti á netinu í júlí sagði hún að vöruframboð Wildberries væri engu frábrugðið vöruframboði Amazon eða Alibaba. Kim sagði engin rök eða heilbrigða skynsemi liggja að baki árásum hryðjuverkamanna og vísaði þar til Úkraínumanna. Árásunum sé ætlað að auka þrýsting, óstöðugleika og skapa ótta og hræðslu á meðal stórs hóps fólks.
Gæti þurfti á ríkisstuðningi að halda
Wildberries er í samstarfi við ríkisrekna bankann VTB. Denys Shtilerman, meðstofnandi og aðalhönnuður úkraínska vopnaframleiðslufyrirtækisins Fire Point, sagði í viðtali við The Guardian í júlí að Wildberries væri stærsti lántaki Rússlands og fall Wildberries myndi leiða til falls fjölda banka, þar með talið VTB.
Talið er að VTB gæti þurft að skipuleggja ríkisstuðning t.d. með lánum, styrkjum eða skattalækkunum. Stjórnvöld í Kreml hafa einnig viðurkennt að fyrirtækið gæti þurft stuðning stjórnvalda vegna tjóns af völdum árása Úkraínuhers.
Eitt er víst að það eru næg verkefni og miklar áskoranir sem bíða eigenda Wildberries og Russ outdoor, hverjir nákvæmlega sem það eru. Enn á ný hafa sprottið upp vangaveltur um hverjir stjórni Wildberries í raun og veru. The New York Times segir að fyrr á þessu ári hafi fyrirtæki Kim ekki fengið neinar arðgreiðslur og allar arðgreiðslurnar, um 640 milljarðar dollara, hafi verið greiddar til Russ outdoor samkvæmt ársskýrslu.
Margir bera tjón eftir árásirnar
Það er nokkuð ljóst að árásir Úkraínuhers á vöruhús Wildberries voru ekki tilfallandi heldur skipulögð atlaga að einu stærsta fyrirtæki Rússlands. Árásirnar hafa sett viðskipti og vörudreifingu fyrirtækisins úr skorðum og erfitt er að segja til um hvort eða hvenær Wildberries nær að rétta úr kútnum.
Fjárhagslegt tjón vegna árásanna bítur ekki aðeins Tatyönu Kim og aðra eigendur fyrirtækisins, heldur líka stóra jafnt sem smáa seljendur á Wildberries. Þegar smásalar fá ekki tjón sitt bætt eftir árásir á vöruhús og starfsfólk deyr eða slasast í drónaárásum á fyrirtækið, þá er erfiðara að halda því fram að hin sértæka hernaðaraðgerð sé einungis í Úkraínu.
Og fyrir marga er það eflaust mikið áfall og skapar óöryggi.
Allt í einu hefur þessi sértæka hernaðaraðgerð Rússa í Úkraínu læðst aftan að hinum almenna borgara á sínum eigin vinnustað, í vöruhúsi Wildberries í Yekatarinnburg, Elektrostal eða í öðrum borgum vítt og breitt um Rússland. Árásirnar hafa sett heimilisbókhald fjölmargra seljenda á hvolf, sem jafnvel hafa tapað öllum sínum lager í brunatjóni sem verður jafnvel ekki bætt.
Tíminn mun leiða í ljós hvort einhver undiraldan fari af stað og hvort gárur hennar muni á endanum ná inn til Kremlar.