Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu í Konukot til að stilla til friðar vegna rifrildis á milli tveggja kvenna sem þar dvelja.
Í dagbók kemur einnig fram að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu í fjölbýlishús í Hafnarfirði vegna mikils samkvæmishávaða. Í dagbók kemur fram að húsráðanda hafi verið gert að lækka og hafa hemil á gestum.
Þá var tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi í Breiðholti vegna neyslu vímuefna og lausa hesta fyrir utan girðingu í Grafarholti.
Alls gistu fjórir í fangaklefa eftir nóttina samkvæmt dagbók og voru 61 mál skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17 til fimm í nótt.