Einn var handtekinn í Hlíðunum í gær eða nótt vegna líkamsárásar og var maðurinn vistaður í fangageymslu samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í miðborginni vegna annarrar líkamsárásar en árásarmaðurinn flúði af vettvangi áður en lögregla kom á staðinn.
Þá barst lögreglunni tilkynning vegna hesta sem voru lausir fyrir utan girðingu í Grafarholti eða Úlfarsárdal, en ekki kemur fram hvort lögregla eða aðrir hafi náð hestunum og komið þeim í girðingu að nýju.