Veðrið í dag verður nokkur endurtekning á því sem landsmenn upplifðu um helgina. Á Vestfjörðum verður strekkingur og vætusamt. Annars staðar verður mun hægari vindur og úrkomulítið. Sums staðar allbjart yfir, að því er fram kemur í veðurpistli vakthafandi veðurfræðings.
Af færð er það einna helst að frétta að Strandavegur er opinn en einungis er fært í gegnum skriðuna sem féll úr Kaldbakshorni á fjórhjóladrifsbílum.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðaustan 8-13 og rigning norðvestantil í dag. Hægari breytileg átt í öðrum landshlutum. Styttir upp á Norðaustur- og Austurlandi, en skúrir sunnan heiða síðdegis. Hiti 3 til 12 stig, svalast á Vestfjörðum.
Gengur í austan og suðaustan 10-18 með rigningu í nótt og fyrramálið, en norðaustlægari vestast. Hægari og úrkomuminna um kvöldið. Hiti 6 til 14 stig, svalast á Vestfjörðum.