Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu greindi frá flutningi tveggja norðurkóreskra stríðsfanga frá Úkraínu til Suður-Kóreu í síðustu viku. Skömmu síðar gagnrýndi forseti Suður-Kóreu, Lee Jae Myung, Zelensky fyrir að hafa greint frá þessu í færslu á X.
Aðstoðarmaður Zelenskys, Dmytro Lytvyn, gerði lítið úr því að forsetinn hafi greint frá fangaflutningnum. Hann sagði að Zelensky hefði aðeins greint frá því að fangarnir hefðu verið fluttir til Suður-Kóreu. Lytvyn bætti við að það hefði verið óvenjulegt að afhenda fangana leynilega.
Seong Ghi-hong, yfirmaður almannatengsla á skrifstofu suðurkóreska forsetans, sagði í tilkynningu í gær að Suður-Kórea væri að íhuga frekari aðgerðir.
Í tilkynningunni segir að það sé alvarlegt mál að trúnaðarsamkomulag milli tveggja þjóða hafi brugðist og Úkraína hafi greint frá þessu einhliða. En það sé enn alvarlegra að skrifstofa forseta í Úkraínu haldi því fram að ekkert trúnaðarsamkomulag hafi verið og það grafi enn frekar undan trausti og skaði vináttu landanna.
Skrifstofa suðurkóreska forsetans fer því fram á opinbera afsökunarbeiðni og útskýringar á þessu.
Norðurkóresku stríðsfangarnir tveir voru meðal hermanna Norður-Kóreu sem börðust með rússneska hernum gegn Úkraínu.
Greinendur telja að stjórnvöld í Suður-Kóreu óttist að þessar upplýsingar um fangaskiptin geti aukið fjandskap Norður-Kóreu í garð Suður-Kóreu enn frekar.