Mikil gleði og skálar á lofti hjá Nei-fólkinu

Sigmundur Davíð, Guðrún Hafsteins og Lilja Alfreð ræða málin
Kosningavaka Áfram Íslands fer fram í Kolaportinu í Reykjavík á laugardagskvöld þar sem stuðningsmenn koma saman til að fylgjast með niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Mikil djammstemning ríkir í húsinu og gestir eru í góðu skapi þegar líður á kvöldið. Stemningin er náin og fjörug og fólk skálar saman fyrir baráttunni og Íslandi á meðan beðið er eftir nýjustu tölum úr kosningunum. Nóg er af áfengi á boðstólum og margir gestanna nýta tækifærið til að lyfta glasi og ræða stöðuna.
Húsið opnaði klukkan 21:30 og stendur kosningavakan langt fram eftir nóttu.
Skipuleggjendur hvetja stuðningsmenn til að mæta hressa í Kolaportið og taka þátt í kvöldinu.
Ljósmyndari Mannlífs mætti á svæðið og tók myndir.