Miðflokkskona sótti ráðstefnu um fjöldabrottvísanir
Helena Ólöf Snorradóttir, varamaður í málefnanefnd Miðflokksins, sótti alþjóðlega ráðstefnu um fjöldabrottvísanir innflytjenda. Ræðumenn voru úr röðum hvítra þjóðernissinna með tengingar við nýnasistahreyfingar, auk Greg Bovino, sem leiddi brottvísunarátak Donalds Trump í Minnesota.
Öfgahægrimenn, nýnasistar og svokallaðir „identitarians“ voru meðal ræðumanna á alþjóðlegri ráðstefnu í Portúgal í lok maí um fjöldabrottvísanir innflytjenda úr Evrópu, allt frá flóttamönnum til ríkisborgara af erlendum uppruna sem þykja „ekki hafa aðlagast“.
Fjöldabrottvísanir (e. remigration) er hugtak sem upphaflega var notað í hópum nýnasista en evrópskir stjórnmálaflokkar á hægri vængnum nota nú í auknum mæli í stað sambærilegra hugtaka eins og „þjóðernishreinsun“ (e. ethnic cleansing) sem eru beintengd við nasisma.
Helena Ólöf Snorradóttir, sem er varamaður í málefnanefnd Miðflokksins, sótti ráðstefnuna. Í samtali við Heimildina segist hún hafa verið eini Íslendingurinn af þeim um 600 manns sem mættu og að þróunin í Evrópu sé eitthvað sem hún óttast. „Þetta er eitthvað sem ég stend föst á og hef sterkar skoðanir gagnvart,“ segir hún.
„Ég fékk að hitta Jared Taylor, sem er faðir þessarar hugmyndar, sem var æði,“ segir hún. Taylor er hvítur yfirburðahyggjumaður sem aðhyllist aðskilnað kynþáttanna og …