Að minnsta kosti 238 almennir borgarar voru drepnir og 1.404 særðust í árásum Rússa í Úkraínu í apríl. Þetta er mesta mannfall í einum mánuði síðan í júlí 2025, samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var á fundi Öryggisráðsins á mánudaginn. Kyiv Independent greinir frá.
Það voru einkum langdrægir drónar og flugskeyti sem ollu mannfallinu. Margar árásanna voru gerðar á bæi og borgir fjarri víglínunni. Um 54% þeirra sem drepnir voru í apríl urðu fyrir árásum nærri víglínunni.
Árásir halda áfram í Úkraínu. Að minnsta kosti 11 eru særðir eftir árásir í nokkrum héruðum Úkraínu í nótt.