Lögreglan á Suðurlandi rannsakar meint kynferðisbrot Kristjáns Björnssonar fyrrum vígslubiskups í Skálholti. RÚV greinir frá að meint brot hafi átt sér stað í Skálholti í ágúst á síðasta ári. Konan, sem tengist Kristjáni fjölskylduböndum, kærði Kristján til lögreglu í september.
Í frétt RÚV kemur fram að málið var ekki tilkynnt til aðgerðarteymis Þjóðkirkjunnar og fregnir af því bárust ekki til Biskupsstofu fyrr en rúmu hálfu ári síðar, í mars á þessu ári.
RÚV vísar í heimildamann og segir að stjórn Þjóðkirkjunnar hafi veitt Guðrúnu Karls Helgadóttur biskupi heimild til að víkja Kristjáni frá störfum, til þess kom þó ekki þar sem hann sagði af sér embætti fimm dögum eftir að Þjóðkirkjan fékk tilkynningu um málið.
Kristján var vígður til embættis vígslubiskups í Skálholtsumdæmi sumarið 2018 af Agnesi M. Sigurðardóttur þáverandi biskupi. Vígslubiskup er næstæðsta embætti Þjóðkirkjunnar á eftir biskupi
Kristján gefur aðra skýringu á starfslokum sínum
Á bloggsíðu sinni segisr Kristján hafa látið af störfum vegna átaka sem fylgt hafi umræðu um embætti vígslubiskupa innan æðstu stjórnar kirkjunnar. Hann segist hafa ákveðið að stíga til hliðar vegna nýrra starfsreglna um vígslubiskupa, þrátt fyrir að þær hafi ekki náð til hans, en þær nái aðeins til þeirra sem vígðir eru í embætti eftir að samþykki reglnanna.
Enn skráður víglubiskup
Á vef Skálholtskirkju er Kristján enn skráður sem vígslubiskup, þrátt fyrir að hafa látið af embætti 21. apríl síðastliðinn samkvæmt færslu á bloggsíðu sinni.
