María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, kallaði eftir málefnalegri og hófstilltri umræðu þegar hún tók til máls á eldhúsdegi Alþingis fyrr í vikunni. Orð hennar urðu tilefni umræðu á samfélagsmiðlum þar sem Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu og Páll Steingrímsson skipstjóri lögðu sitt af mörkum.
Opið skotleyfi
Í ræðu sinni á Alþingi tók María Rut dæmi af sjálfri sér og sínum persónulegu högum sem hún sagði hafa orðið tilefni að grimmilegum athugasemdum í opinberri umræðu.
„Það vegur að grunngildum okkar og það býr til heim þar sem búið er til einhvers konar opið skotleyfi á jaðarsetta hópa, opið skotleyfi á fólk sem gefur sig að samfélagsmálunum og það finnst mér vera vond þróun og beinlínis hættuleg,“ sagði þingmaðurinn.
María Rut kvaðst hálfdofin yfir heiftinni og velti fyrir sér hvort venjulegar manneskjur slepptu sér við lyklaborðið eða hvort „gervimenni“ væru hönnuð til að þyrla upp ryki og valda reiði. Hún taldi alla stjórnmálamenn kannast við rætnar athugasemdir úr öllum áttum og spurði hverjir græddu á að breikka gjána.
Þingmaðurinn sagði umræðuna um ESB-umsóknina og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu skýrt dæmi um skautun umræðunnar þar sem „hvorug hliðin trúi því að hin sé í góðri trú með sínar meiningar“.
Andrea spyr um ábyrgð Viðreisnar
Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, gerði ræðu Maríu Rutar að umtalsefni í Facebook-færslu. Hún tók undir með þingmanninum að persónulegar árásir á einkalíf stjórnmálamanna og annarra sem taka þátt í opinberri umræðu væru óásættanlegar.
Andrea telur engu að síður að Viðreisn megi líta í eigin barm. Hún bendir á að flokkurinn hafi ítrekað sakað andstæðinga sína, meðal annars í Evrópuumræðunni, um að ganga erinda sérhagsmuna fremur en almannahagsmuna.
Þá hafi stjórnarliðar, þar á meðal ráðherrar, að hennar mati grafið undan trúverðugleika fjölmiðla og einstakra blaðamanna með ásökunum um upplýsingaóreiðu og öðrum niðrandi ummælum.
Formaður Evrópuhreyfingarinnar hafi einnig, að sögn Andreu, sakað Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og pistlahöfund, um að bera ábyrgð á „ógeðfelldum athugasemdum einhverra nafnlausra lítilmenna á internetinu“.
Andrea rifjar jafnframt upp að ekki sé langt síðan Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var ásökuð um valdarán af forsætisráðherra og þingmönnum Viðreisnar á Alþingi.
María Rut svaraði færslunni í athugasemdakerfinu og sagði að það væri engum málstað til framdráttar að hjóla í persónuna. Sjálf reyndi hún að halda sig við málefni fremur en persónur.
Listi Páls Steingrímssonar
Páll Steingrímsson skipstjóri skrifaði athugasemd við færslu Andreu. Páll er brotaþoli í byrlunar- og símamálinu og segir að í þeirri umræðu hafi oft og einatt verið vegið að persónu sinni með rætnum hætti.
Hann kveðst hafa tekið saman lista yfir þau ummæli sem honum þyki hvað óvægnust og jafnframt yfir höfunda þeirra.
Páll birtir ummælin ekki að sinni, en segir að hann kunni að gera það síðar. Í staðinn spyr hann lesendur hvaða sameiginlega einkenni þeir telji að höfundarnir hafi.
Á listanum eru eftirfarandi einstaklingar:
- Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
- Katrín Oddsdóttir
- Atli Thor Fanndal
- Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir
- Alexandra Briem
- Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
- Björg Eva Erlendsdóttir
- Felix Bergson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Hanna Katrín Friðriksson
Páll birtir ekki ummælin sem hann vísar til og því geta lesendur ekki metið sjálfir hvort lýsing hans á þeim sem „óvægum“ eigi við í öllum tilvikum.