Þann fjórtánda maí síðastliðinn lagðist drottningin inn á sjúkrahús eftir að hafa fengið fyrir hjartað. Hún gekkst undir hjartaþræðingu og var útskrifuð af Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn sex dögum síðar.
Við sneiðmyndatöku fyrir sex dögum fannst blóðsöfnun á mjaðmasvæði og var hún í kjölfarið lögð inn á ný til frekari aðhlynningar. Það var svo í gær sem drottningin var útskrifuð.
Í fréttatilkynningu kemur fram að hún sé á batavegi og komin til baka í Fredensborgarhöll.
Samkvæmt opinberri dagskrá drottningar stendur til að hún vígi brú sem nefnd er eftir henni þann sjötta júní næstkomandi. Mun þurfa að koma í ljós hvort heilsa hennar leyfi henni að taka þátt í hátíðarhöldunum.
Margrét Þórhildur tilkynnti, Dönum til mikillar undrunar, í áramótaávarpi sínu árið 2023 að hún hygðist stíga til hliðar sem drottning. Friðrik sonur hennar tók í kjölfarið við krúnunni þann fjórtánda janúar 2024 og varð Friðrik X.
Margrét Þórhildur er 86 ára gömul en tekur enn virkan þátt í opinberu lífi og sinnir áhugamálum sínum af krafti. Ólíkt mörgum öðrum konungbornum þjóðhöfðingjum hefur hún oft leift persónuleika sínum að skína í gegn í embættisverkum sínum og hefur fyrir vikið notið fádæma vinsælda meðan dönsku þjóðarinnar.