Margrét Friðriksdóttir sagði í viðtali við Samstöðina í gærkvöld að háttsett fólk hafi haft samband við lögmann hennar og hótað honum fyrir að taka að sér mál hennar.
Margrét var nýlega sakfelld fyrir ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og dæmd til 200 þúsund króna sektargreiðslu auk málskostnaðar fyrir um þrjár milljónir króna. Margrét er afar ósátt við dóminn og hefur tjáð sig um hann á Facebook og síðan í löngu viðtali við Samstöðina í gærkvöld.
Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara
„Þetta eru hæstaréttarlögmenn, þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum,“ sagði Margrét og aðspurð um hvað fælist í hótunum sagði hún:
„Að hann fái ekki sakamál og ýmislegt. Að honum verði gert lífið leitt.“
DV hafði samband við lögmann Margrétar, Hilmar Garðars Þorsteinsson, og bar þessi ummæli undir hann. Hilmar hafði ekki séð viðtalið en eftir að DV hafði rakið orð Margrétar fyrir honum sagði hann:
„Ég get ómögulega tjáð mig um þau orð. Ég rek mína eigin stofu og er engum háður um framgang í starfi.“