Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.
Ást og fasteignir eiga margt sameiginlegt eins og oft kemur í ljós á Smartlandi. Fjölmiðlaparið Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Jón Trausti Reynisson féllu hvort fyrir öðru fyrir nokkrum árum. Parið sem starfaði áður á Stundinni, nú Heimildinni, fjárfesti svo í raðhúsi saman.
Húsið sem þau féllu fyrir stendur við Nesbala og er 262 fm raðhús sem byggt var 1982. Bæði eiga þau börn frá fyrri samböndum og því ætti ekki að fara illa um mannskapinn í þessu fallega húsi við sjóinn.
Parið býr enn þá á Seltjarnarnesi og elskar það!
