Stjórn Brunavarna Árnessýslu hefur ákveðið að vísa máli sem tengist starfslokum Péturs Péturssonar, fyrrverandi slökkviliðsstjóra, til lögreglu. Málið varðar fjárreiður Brunavarna Árnessýslu og hefur starfsmönnum slökkviliðsins verið tilkynnt um það.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Brunavarna Árnessýslu sem birt var í morgun, en Sunnlenska.is sagði fyrst frá.
Þar segir að stjórnin líti málið alvarlegum augum en hyggist ekki tjá sig frekar um efni þess á meðan rannsókn stendur yfir.
„Stjórn Brunavarna Árnessýslu lítur málið alvarlegum augum. Með hliðsjón af því að málið er nú komið til rannsóknar hjá lögreglu telur stjórn ekki rétt að tjá sig frekar um efni þess að svo stöddu. Stjórn leggur áherslu á að rannsókn fari fram með þeim hætti sem lög mæla fyrir um og að réttur allra aðila verði virtur,“ segir í tilkynningunni.
Lét af störfum fyrr í vikunni
Greint var frá því fyrr í vikunni að Pétur hefði látið af störfum eftir að stjórn Brunavarna Árnessýslu tók til skoðunar mál sem tengist stjórnun og stjórnunarháttum hans. Samkvæmt upplýsingum sem birtust í bréfi stjórnar til starfsmanna voru ákveðnir þættir í starfsemi byggðasamlagsins til skoðunar.
Eftir að Pétri voru kynntir málavextir á dögunum komust hann og stjórnin að samkomulagi um uppsögn og lok ráðningarsambands hans. Hann lét þegar í stað af störfum.
Lárus Kristinn Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri, hefur verið ráðinn tímabundið í starf slökkviliðsstjóra.
Starfsemin óbreytt
Í tilkynningu stjórnar er áréttað að Brunavarnir Árnessýslu séu byggðasamlag í eigu aðildarsveitarfélaganna sem annast lögbundna brunavarna- og viðbragðsþjónustu á starfssvæðinu. Reksturinn sé fjármagnaður af sveitarfélögunum og beri stjórninni því ríka ábyrgð á meðferð fjármuna byggðasamlagsins.
Þrátt fyrir rannsókn málsins er starfsemi Brunavarna Árnessýslu sögð óbreytt og öll lögbundin þjónusta og viðbragðsgeta óskert.
Ekki hafa verið veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.