Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson átti stórleik fyrir Alba Berlín í oddaleik gegn Vechta í átta liða úrslitum um þýska meistaratitilinn í körfubolta í Berlín í gærkvöldiu.
Martin skoraði 19 stig og gaf tíu stoðsendingar en hann lék í 27 mínútur í leiknum. Hann gerði gæfumuninn ef marka má þýska dagblaðið Tagesspiegel.
Martin hefur leikið afar vel í úrslitakeppninni til þessa og er hann byrjaður að sýna sitt rétta andlit eftir erfið meiðsli.
„Martin er um þessar mundir að upplifa eftirtektarverða endurreisn hjá Alba Berlín,“ stendur í umfjöllun blaðsins.
Martin var sjálfur til viðtals eftir leik og líkti sér þar við Benjamin Button. Hann er orðinn 31 árs en er að spila sinn besta körfubolta í mörg ár um þessar mundir.
„Ég er að njóta mín mjög mikið á þessu tímabili. Ég er eins og Benjamin Button því ég yngist með aldrinum,“ sagði Martin.
Löng meiðslasaga
Martin lék mjög vel með Alba á árunum 2018–2020 en síðan gekk hann í raðir Valencia á Spáni. Þar varð hann fyrir alvarlegum hnémeiðslum og hefur eytt miklum tíma í endurhæfingu undanfarin ár.
Hann gekk síðan aftur í raðir Alba Berlín í janúar 2024 en hefur mikið verið frá vegna meiðsla, þó að engin þeirra hafi verið alvarleg. Hann meiddist í tvo mánuði fyrr á tímabilinu.
Martin hefur því loksins verið að leika afar vel í úrslitakeppninni til þessa og er hann byrjaður að sýna sitt rétta andlit eftir erfið meiðsli.
Alba mætir Bamberg í undanúrslitum en Martin og félagar enduðu í öðru sæti deildarinnar og Bamberg í því þriðja.