Tennisstjarnan Naomi Osaka kom sá og sigraði hvað varðar fataval við opnun franska tennismótsins French Open. Undanfarin ár hefur tennisfatnaður hætt að vera leiðigjarn og týpískur og mun meiri glamúr kominn inn í greinina.
Í fyrstu umferð mótsins, þar sem Osaka lék á móti Lauru Siegemund, leitaði hún til svissneska hátískuhönnuðarins Kevin Germanier, sem skapaði sérsniðin útlit fyrir hana.
Osaka mætti á völlinn í svörtu síðu tjullpilsi sem var plíserað. Germanier endurhannaði eldri keppnisfatnað hennar, tennispils, jakka og kjól. Keppnisfötin hennar voru koníakslituð og skreytt gylltum pallíettum.
Það verður spennandi að fylgjast með fatastílnum hennar á mótinu næstu daga.

