Körfuknattleiksdeild Breiðabliks ætlar að mæta með kvennalið til leiks í 1. deildinni á komandi leiktíð.
Stendur félagið nú í ströngu við að byggja upp lið eftir tveggja ára fjarveru en Breiðablik hefur ráðið Vojtech Novák sem nýjan þjálfara.
„Breiðablik var síðast með meistaraflokk kvenna árið 2023 og því eru þetta gleðitíðindi fyrir körfuboltann í Kópavogi.
Markmiðið er að skapa sterka umgjörð þar sem ungar Blikastelpur fá raunveruleg tækifæri til að taka næstu skref í meistaraflokki,“ segir m.a. í yfirlýsingu félagsins.