Sá sem var stunginn með hnífi í miðborg Reykjavíkur í nótt er ekki í lífshættu. Þetta segir Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu.
Árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistað í Tryggvagötu rétt fyrir klukkan þrjú í nótt.
Gerandi flúði af vettvangi en var handtekinn í leigubíl skömmu síðar blóðugur og með stunguvopnið á sér.
Árni segir myndavélakerfið í miðbæ Reykjavíkur hafa gert sitt gagn þar sem hægt var að rekja ferðir mannsins í leigubílinn. Mikilvægt sé að ná fólki sem fyrst eftir árásir sem þessar.
Einn var handtekinn vegna kannabisræktunar í fjölbýlishúsi í Mosfellsbæ í nótt. Umfang framleiðslunnar var ekki mikið að mati lögreglu.
Árni vildi líka benda ökumönnum á að fara varlega í umferðinni í dag. Hægt er að athuga færð á vegum inni á umferdin.is.