Banaslysið varð um miðjan dag á mánudag. Björgunarsveitir leituðu að manninum með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og fannst líkið þá um kvöldið.
Pólski fjölmiðillinn GPS greinir frá því að maðurinn hafi verið 39 ára gamall Pólverji frá bænum Sroda Wielkopolska um þrjátíu kílómetra suðaustur af Poznan. Hann hafi verið á ferðalagi með hópi vina á Íslandi.
Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli síðustu daga. Íslenskur leiðsögumaður sem varð vitni að banaslysinu gagnrýndi að fallvarnir og björgunartæki skorti við gilið sem hefur orðið að fjölsóttum ferðamannastað á undanförnum árum.
Innan við tvö ár eru frá því að erlend ferðakona lést þegar hún féll í Stuðlagili.