Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Mynd: KinoMasterskaya/Shutterstock
Maðurinn sem féll í Ölfusá í gærkvöldi er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Tilkynning barst lögreglu um klukkan sjö í gærkvöld um mann sem hafði fallið í ána. Hann fannst skömmu síðar neðar í ánni eftir stutta leit.
Mikill viðbúnaður var vegna atviksins en lögregla, sjúkraflutningamenn, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð á vettvang. Maðurinn var fluttur með þyrlu á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík.
Lögreglan á Suðurlandi segir að rannsóknardeild embættisins rannsaki nú tildrög slyssins.