Allt tiltækt viðbragðslið var kallað út á hæsta forgangi eftir að ferðamenn sáu til manns í neyð niðri í gilinu við Háafoss í Þjórsárdal á Suðurlandi. Maðurinn er kominn um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og verið er að flytja hann til Reykjavíkur, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Engar upplýsingar fást um líðan hans.
Útkallið var á hæsta forgangi. Björgunarsveitir og straumvatnsbjörgunarsveitarhópar frá höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út.
Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir útkall á hæsta forgangi vanalegt fyrirkomulag þegar tilkynnt er um einstakling sem er veikur eða án meðvitundar.
Leitað að ferðamanni á svæðinu
Á þriðjudag óskaði lögreglan á Suðurlandi eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu við leit að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað. Leitað var í grennd við Háafoss í Þjórsárdal þar sem síðast sást til bíls mannsins. Leitinni var síðan frestað fram yfir helgi.
Lögreglan á Suðurlandi getur ekki staðfest að um sama mann sé að ræða og gefur ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
Fréttin hefur verið uppfærð.