„Staðan er enn grafalvarleg, hann er enn í lífshættu og enn á gjörgæslu, en það er farið að létta á svæfingunni á honum. Hann er kominn aðeins til meðvitundar,“ segir Vilhjálmur í samtali við fréttastofu.
Um er að ræða Íslending á fimmtugsaldri. Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af manninum í síðustu viku þar sem hann var í kirkjugarðinum í Keflavík. Maðurinn hafði hellt yfir sig íkveikjuvökva og beitti lögreglan rafbyssu. Sjónarvottur lýsti því í kvöldfréttum Sýnar hvernig kviknað hefði í manninum. Lögregla segir manninn hafa kveikt eldinn sjálfur með kveikjara en ekki er hægt að útiloka að eldurinn hafi kviknað út frá rafbyssunni.
Sjá einnig: Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri
Vilhjálmur segir að við komu til Noregs hafi maðurinn þurft að fá barkaþræðingu til að geta andað. Hann sé með lungnabólgu og sé mikið brunninn og því sé enn töluverð sýkingarhætta.
„Hann er enn á gjörgæslu og verður það áfram og lengi,“ segir Vilhjálmur og að hann verði áfram í Noregi á meðan staðan sé svo alvarleg.
Vilhjálmur sagði í samtali við Vísi fyrr í mánuðinum að lögregla hefði stórskaðað manninn og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva.