Maður úrskurðaður látinn á Fimmvörðuhálsi

Erlendur ferðamaður lést í gær á Fimmvörðuhálsi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Í tilkynningunni segir að borist hafi tilkynning um alvarleg veikindi erlends ferðamanns á Fimmvörðuhálsi fyrir hádegi í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar hafi farið á vettvang ásamt björgunarsveitum og hafi lögregla og sjúkraflutningamenn notið liðsinnis björgunarsveita til að komast á vettvang. Endurlífgunartilraunir hafi ekki borið árangur og maðurinn því verið úrskurðaður látinn á vettvangi.