Maður í annarlegu ástandi var handtekinn í miðborginni sem hafði uppi ógnandi tilburði og beitti skærum við að skemma bíl í gærkvöld eða nótt. Í morgunskeyti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að hann hafi sömuleiðis hótað lögreglumönnum öllu illu.
Annar var tekinn höndum með bakpoka fullan af fíkniefnum og fjármunum eftir stutta eftirför frá grunnskólalóð í miðborginni þar sem lögreglumenn sáu nokkra menn skipast á hlutum eins og það er orðað.
Lögregla rannsakar einnig hvað leiddi til þess að svokallaður bílahittingur við verslanamiðstöð í úthverfi endaði með skemmdarverkum og slagsmálum. Auk þessa hafði lögreglan afskipti af ökumönnum sem sumir voru undir áhrifum og aðrir á bílum búnum nagladekkjum. Átta gistu fangageymslur í morgun.