Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn snemma í morgunsárið. Vegfarandi gekk fram á manninn og gerði lögreglu viðvart.
Frá þessu greinir danski miðillinn BT.
Lögreglan segir í samtali við TV 2 að ekki sé grunur um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. Aðstandendur hans hafi verið látnir vita nú þegar.