„Það var tilkynnt um mann sem hafði lamið konu. Svo þegar lögreglu ber að garði þarna þá er hann að reyna að ráðast á starfsfólk,“ segir Skúli Jónsson yfirlögregluþjónn sem greinir frá málinu í samtali við fréttastofu. Maðurinn sé á sjötugsaldri.
Tildrög árásarinnar liggja ekki fyrir.
Árásinn átti sér stað upp úr klukkan 19 en maðurinn var handtekinn og færður í fangaklefa, svo látinn laus í morgun eftir yfirheyrslur, að sögn yfirlögregluþjónsins.
Maðurinn hafi kýlt konuna með krepptum hnefa í andlitið og hún hafi verið með blóð á andliti og í tönnum.
„En það þurfti ekki að flytja hana á spítala strax, þannig að það var eitthvað sem þolandi ætlaði að gera sjálfur,“ segir Skúli.
Einnig var tilkynnt um líkamsárás við Linnetsstíg í Hafnarfirði en gerandi hafði komið sér af vettvangi þegar lögreglu bar að garði.
Þá bárust einnig tvær tilkynningar um heimilisofbeldi á höfuðborgarsvæðinu, sem lögregla brást við.