Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og Nóbelsverðlaunahafi, kveðst staðráðin í að semja um lýðræðislega umbreytingu á stjórnarháttum við forsetann Delcy Rodriguez. Hún tók við til bráðabirgða eftir að Bandaríkin steyptu Nicolás Maduro af stóli í janúar.
Stjórnarandstaðan hefur ætíð haldið fram sigri Edmundo Gonzalez Urrutia í forsetakosningunum 2024. Machado biðlaði í yfirlýsingu til Bandaríkjanna um liðsinni við að stuðla að afgerandi og ábyrgum viðræðum við bráðabirgðastjórnina svo endurreisa megi lýðræði í Venesúela.
„Megintilgangurinn er að haldnar verði frjálsar forsetakosningar með gegnsæi og fullveldi landsins að leiðarljósi,“ skrifaði Machado sem hefur tilkynnt að hún ætli að gefa kost á sér í kosningum sem ekki er vitað hvenær verða haldnar.
Machado kveðst hafa fulla trú á að Donald Trump Bandaríkjaforseti stuðli að því að kosningar verði haldnar líkt og hann boðaði eftir að Maduro var tekinn höndum og fluttur úr landi. Machado kveðst ætla að snúa aftur heim úr útlegð þótt stjórnvöld líti á hana sem flóttamann sem kynti undir hernaðaríhlutun Bandaríkjanna.